Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Björn Zoëga: „Mun hærri launahækkun en hjá öðrum heilbrigðisstarfsmönnum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég hugsa um hvernig starfsfólki okkar líður, einnig fyrir faraldur og nú síðast um hátíðarnar, með því að taka aukavaktir, tvöfaldar vaktir og yfirvinnu. Þetta stingur í augun,“ segir Emma Jonsson, formaður Félags heilbrigðisstarfsmanna í Stokkhólmi. En hún er gagnrýnin á launahækkun Björns þar sem sérstök umbun til fjölda heilbrigðisstarfsmanna, sem rætt hafi verið um í tengslum við auka álag í faraldrinum, hafi ekki skilað sér.

Mánaðarlaun Björns Zoëga, forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð, hækkuðu á síðasta ári um nærri 30 þúsund sænskar krónur, jafnvirði um 430 þúsund íslenska króna. Laun hans eftir hækkunina nema rúmlega 270 þúsund sænskum krónum eða 3,9 milljónum íslenskra króna.

Tók við sérstöku ráðgjafarhlutverki

Björn Zoëga tók við sem forstjóri Karolinska árið 2019, en dagana fyrir síðustu jól var tilkynnt að hann myndi gegna sérstöku ráðgjafarhlutverki fyrir nýjan heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, þegar kemur að viðbrögðum við heimsfaraldurinn og stöðuna á Landspítalanum.

Johan Styrud, formaður Læknafélags Stokkhólms, setur spurningamerki við hækkunina. Hann telur að læknum hafi hins vegar ekki verið umbunað nægilega vegna þeirrar miklu vinnu sem þeir hafi skilað af hendi í heimsfaraldrinum og sömuleiðis nú í fjórðu bylgjunni.

Hann setur spurningar við þessa miklu launahækkun sjúkrahúsforstjóra Karolinska.

„Tólf prósent er mjög mikið. Að Karolinska hafi snúið við hallarekstri tengist því að maður hafi hægt á flæði bráðasjúklinga þangað. Í ástandi þar sem allir hafi slitið sig út er gott að fara varlega í allar svona launahækkanir.“

- Auglýsing -

Mun hærri launahækkun en hjá öðrum

Úttekt Dagens Nyheter sýnir að laun Björns hafi hækkað nokkuð umfram það sem gengur og gerist meðal annarra sambærilegra stjórnenda og er formaður Læknafélagsins í Stokkhólmi í hópi þeirra sem sett hafa spurningamerki við launahækkun forstjórans.

DN segir laun Björns vera há í samanburði við aðra sjúkrahúsforstjóra og hafi þessi tólf prósenta launahækkun á síðasta ári verið mun hærri en hjá öðrum. Þannig hafi forstjóri Sahlgrenska sjúkrahússins í Gautaborg, Ann-Marie Wennberg Larkö, til dæmis verið með rúmelga 170 þúsund sænskra króna í mánaðarlaun. Í greininni eru upphæðirnar sömuleiðis bornar saman við mánaðarlaun sænska forsætisráðherrans sem eru 180 þúsund, um 2,6 milljónir íslenskra króna.

Hann hefur náð að snúa við hallarekstri

Carina Lundberg Uudelepp, forstjóri Region Stockholm sem er ábyrg fyrir að halda úti heilbrigðisþjónustu í Stokkhólmi og nágrenni, segir að laun æðstu stjórnenda séu ákvörðuð úr frá hæfni, rekstrarniðurstöðu og stöðunni á markaði.

- Auglýsing -

Hún segir að þegar kemur að Birni þá hafi spítalanum – undir hans stjórn – tekist að snúa við miklum hallarekstri, á sama tíma og tekist hafi að fjölga sjúkrarýmum og stytt biðlista hjá þeim sem bíða meðferðar við krabbameini. Hafi rekstrarniðurstaðan raunar verið talsvert umfram þess sem var krafist.

Läkartidningen, Læknablaðið sænska, segir frá því að á síðasta ári hafi laun sænskra lækna hækkað um tvö prósent að jafnaði að síðasta ári.

Í frétt DN segir að þegar Björn tók við forstjórastöðunni árið 2019 hafi mánaðarlaun hans verið 234 þúsund sænskar krónur, tæpar 3,4 milljónir íslenskra króna. Þegar Björn hafi tekið við hafi hann farið fram á að fá sömu laun og forverinn, 247 þúsund sænskar, en ekki fengið. Nú séu þau hins vegar 270.600 sænskar krónur á mánuði.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -