Bragi Páll Sigurðarson vill að fólk hætti kurteisinni og skíti upp í fasista.
Rithöfundurinn umdeildi, Bragi Páll Sigurðarson er ekki þekktur fyrir að sitja á skoðunum sínum eða fyrir kurteisislegt orðalag. Frægt er þegar hann smyglaði sér inn á landsþing Sjálfstæðismanna og skrifaði um það beinskeyttan pistil í Stundina sálugu. Þá vakti bók hans Arnaldur Indriðason deyr, mikla athygli enda myrti hann einn ástsælasta glæpasagnahöfund Íslands í bókinni á hrottafenginn hátt.
Í nýrri færslu á Twitter hvetur Bragi Páll lesendur sína til að hætta „þessari kurteisi“ gagnvart auðvaldinu. Ennfremur segir hann að yfirstéttinni sé sama um almenning. Í raun virðist hann vera að hvetja til byltingar enda sé plánetan að deyja. Á stuttum tíma hefur færla Braga Páls vakið athygli og fjölmargir hafa lýst velþóknun yfir henni með „læki“.
„Hættið þessari kurteisi. Skítum upp í fasista. Árangursríkar byltingar enda ekki á því að skálað er í böblí við auðvaldið með litla fingur stífan út í loftið. Plánetan er að deyja. Yfirstéttinni er sama um ykkur. Eini steinninn sem dropinn holar aldrei er hjartað í þessu fólki.“