Fimmtudagur 2. maí, 2024
6.8 C
Reykjavik

Hildigunnur nýr forstjóri Veðurstofu Íslands

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Hildigunni H. H. Thorsteinsson í embætti forstjóra Veðurstofu Íslands til næstu fimm ára. Hún verður skipuð í embættið frá og með 1. júní nk,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráði Íslands.

Starf forstjóra Veðurstofu Íslands var auglýst í nóvember síðastliðnum og sóttu átta um embættið.

„Hildigunnur er með BSc gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og lauk MSc gráðu í Technology and Policy frá Massachusetts Institute of Technology árið 2008.

Hildigunnur hefur starfað sem Chief Technical Officer hjá Innargi A/S í Kaupmannahöfn, frá 2022. Hún starfaði sem verkfræðingur hjá Enex Hf. í Reykjavík á árunum 2005-2006 og sem verkefnastjóri hjá Iceland America Energy Inc. í Los Angeles 2008-2009. Hildigunnur var tæknistjóri í orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna í Washington árin 2009-2011 og síðar teymisstjóri á jarðvarmasviði í sama ráðuneyti 2011-2012. Árið 2013 tók Hildigunnur við stöðu framkvæmdastýru rannsókna- og nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur og sinnti því starfi til ársins 2022.“

Hildigunnur er önnur konan til að stýra Veðurstofu Íslands, en áður var Teresía Guðmundsson var veðurstofustjóri frá 1946 -1963, fyrst kvenna í heiminum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -