Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Meintir gerendur í máli Vítalíu sakaðir um svindl í golfi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þeir Ari Edwald, Hreggviður Jónsson, Logi Bergmann Eiðsson og Þórður Már Jóhannesson eiga margt sameiginlegt. Fyrir utan að vera allir framámenn í samfélaginu þá eru þeir allir sakaðir um kynferðislegt áreiti og misnotkun í garð Vítalíu Lazareva og þeir eru jafnframt saman í golfklúbbnum Stullunum, einum þekktasta gólffélagsskap landsins.

Mál Vítalíu hefur vakið gríðarlega athygli eftir að Mannlíf birti frásagnir hennar af samfélagsmiðlun þar sem ofangreindir menn, ásamt líkamsræktarfrömuðnum Arnari Grant, voru sakaðir um kynferðislegt áreiti og misnotkun í hennar garð. Vítalía var í leynilegu ástarsambandi við Arnar sem að hennar sögn nánast falbauð hana vinum sínum. Hún lýsti ferð í sumarbústað þar sem hún og fjórir menn voru nakin í heitum potti og mörk hennar voru ekki virt.

Sjá einnig:

Þetta eru mennirnir sem Vítalía ásakar – Ari í leyfi vegna ásakana

 

Þá sagði hún frá golfferð þar sem þekktur fjölmiðlamaður fékk leyfi ástmannsins til að misbjóða henni. Hún birti nöfn meintra gerenda og samskipti við þá á samfélagsmiðlum. Vítalía kom síðan fram í hlaðvarpsviðtali hjá Eddu Falak þar sem hún sagði frá málum í smáatriðum. Meðal annars lýsti hún því þegar ástmaður hennar, harðgiftur, bauð vini sínum, sem hafði komið óvænt að þeim í ástarleik, á hóteli í Borgarfirði, aðgang að henni.

- Auglýsing -

Líkt og Mannlíf greindi frá í dag hafa allir mennirnir, fyrir utan Loga Bergmann, stigið til hliðar úr ábyrgðarstöðum sínum vegna ásakananna.

Á síðasta ári úrskurðaði aganefnd Golfklúbbs Reykjavíkur, GR, í máli þar sem í ljós kom að Stullarnir höfðu svindlað í kerfi klúbbsins og skapað sér með svindlinu forgang í skráningarkerfi um rástíma á golfvöllum. Til að ná þessu fram notuðu Stullarnir tölvuforrit og ákvað GR að dæma formann Stullanna í tímabundið bann frá völlum GR.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -