- Auglýsing -
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan fjögur í dag vegna sinubruna í Kópavogi. Að sögn sjónarvotts lá mikinn reyk frá svæðinu og yfir Kópavog en lyktin vegna brunans fannst niður í Fossvogsdal.
Vísir náði tali af varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu sem sagði tvær slökkvistöðvar vera á vettvangi. Svæðið sem brennur er við Turnahvarf í Kópavogi og hefur eldurinn þegar borist í tré og annan gróður á svæðinu.
Fréttin verður uppfærð.
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir náði þessu myndskeiði af brunanum með drónamyndavél: