Viðskiptablaðið greinir frá því að samfélagsmiðlastjarnan og metsöluhöfundurinn Sólrún Diego hafi verið ráðin markaðsstjóri barnavöruverslananna Vonar verslunar og Bíum Bíum:
„Ég er mjög spennt að spreyta mig á þessu sviði og að vinna með þeim Eyrúnu og Olgu. Ég er búin að vera með minn miðil í sjö ár og finnst vera kominn tími á að nýta menntunina mína í eitthvað almennilegt,“ segir Sólrún.
Hún útskrifast sem viðskiptafræðingur um jólin; hún lagði áherslu á markaðssamskipti og samfélagsmiðla í námi sínu við Háskólann á Bifröst.
Vinkonurnar Eyrún Anna Tryggvadóttir og Olga Helena Ólafsdóttir, eigendur Vonar verslunar, gengu nú á dögunum frá kaupum á fyrirtækinu Bíum Bíum.
Verslunin Von hefur boðið upp á leikföng, húsgögn, föt sem og aðrar barnavörur, á meðan Bíum bíum hefur sérhæft sig í flottu og miklu úrvali af barnafötum fyrir breiðari aldurshópa.
Verslunin er með einkadreifingarsamning við vörumerki frá Danmörku sem hafa notið vinsælda hér á Íslandi:
„Ég er búin að vera mikill viðskiptavinur Bíum Bíum síðan ég eignaðist börn, og hefur hún verið mín uppáhalds barnavöruverslun hér á landi. Ég hef auk þess brennandi áhuga á markaðssetningu og barnavörum. Þá hef ég átt í góðum samskiptum við þær Eyrúnu og Olgu, en eftir að þær kaupa Bíum Bíum fengum við þessa hugmynd að ég myndi sjá um markaðssetningu verslunarinnar,“ segir Sólrún.
Kemur fram í frétt blaðsins að þŕ Eyrún og Olga hyggjast reka verslanirnar áfram undir sitt hvoru nafninu; en markmiðið sé að verða sér úti um stærra húsnæði sem rúmi báðar verslanirnar undir sama þakinu. Þŕ vilja einnig styrkja netverslunina og hafa verslanirnar sýnilegar á samfélagsmiðlum.
Og Sólrún segir ýmis konar tækifæri liggja í netverslun og samfélagsmiðlum:
„Ég ætla að leggja áherslu á að aðgengi að netversluninni sé gott og að fólk úr öllum landshlutum geti skoðað og pantað sér vörur, að þú þurfir ekki að koma í búðina. Það eru því mörg tækifæri framundan að gera alls konar nýtt og ég er spennt að fá að koma öllum mínum hugmyndum á framfæri.“