Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Staðfest smit á Íslandi orðin 1.220 talsins

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fjöldi staðfestra COVID-19 smita hér á landi er kominn upp í 1.220 samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Greindum smitum hefur fjölgað um 85 á síðasta sólarhring. 35 sjúklingar eru á sjúkrahúsi vegna veirunnar er fram kemur á covid.is, þar af eru 12 á gjörgæslu.

815 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær, 74 reyndust jákvæð. Þá voru 797 sýni rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu í gær, 11 þeirra voru jákvæð.

Alls eru 7.822 einstaklingar í sóttkví hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar. Samkvæmt tölum covid.is hafa 225 einstaklingar náð bata eftir að hafa smitast.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan tvö í dag. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, verður gestur fundarins í dag. Mikið álag er á stofnuninni um þessar mundir og mun hún koma upplýsingum áleiðis um helstu verkefni og áskoranir.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -