Lyfja hefur kært fyrrverandi starfsmann sinn fyrir að fletta upp fólki í lyfjagátt fyrir forvitnissakir. Morgunblaðið greindi frá málinu í morgun en uppflettingin tilefnislausa átti sér stað árið 2021. Ákveðið var að tilkynna málið til lögreglu eftir að Embætti landlæknis staðfesti að uppflettingin hafi í raun átt sér stað.
Í fréttinni segir enn fremur að Persónuvernd, Lyfjastofnun og Embætti landlæknis hafi borist ábendingar um að þjóðþekktu fólki væri flett upp í lyfjagátt og upplýsingum dreift til þriðja aðila. Auk þess hafi nokkur ótengd atvik komið upp þar sem öðru fólki hafi einnig verið flett upp. Þórbergur Egilsson, framkvæmdastjóri verslanasviðs Lyfju, staðfesti í svari til Morgunblaðsins að Lyfju hafi borist erindi vegna uppflettinganna. Fyrirtækið hafi þegar í stað haft samband við Persónuvernd og Embætti landlæknis vegna málsins árið 2021.