Miðvikudagur 8. maí, 2024
3.8 C
Reykjavik

Tryggvi Helgason hlaut Míuverðlaunin 2022: „Heiðra þá sem koma að þjónustu langveikra barna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Míuverðlaunin voru afhent í þriðja sinn í gær við hátíðlega athöfn á Spritz Venue, Reykjavík. Tíu heilbrigðisstarfsmenn sem vinna með langveikum börnum voru heiðraðir á viðburðinum.

„Míuverðlaunin eru verðlaun til að heiðra þá sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Einhver sem hefur hjálpað eða stutt við þig og þína fjölskyldu á erfiðum tíma. Það sem þeim finnst vera „bara vinnan sín“ getur skipt sköpum fyrir aðstandendur langveikra barna og börnin sjálf. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfsstétt sem er, hvar á landinu sem er,“ segir í tilkynningu um verðlaunin.

Epal eru aðalstyrktaraðilar verðlaunanna í ár og leyndi það sér ekki að viðburðurinn var einstaklega fallegur. Veitingarnar voru styrktar af Ölgerðinni, Hamborgarafabrikkunni, Töst og Gulla Bakara. Patricia Arjona, innanhússarkitekt, stíliseraði viðburðinn. 

Tryggvi Helgason, barnalæknir á Barnaspítala Hringsins og Domus Medica, hlaut Míuverðlaunin að þessu sinni.

- Auglýsing -

Brynja Dan, athafnakona, afhenti Míuverðlaunin ásamt Ingu Elínu einni virtustu handverkskonu evrópu, sem hannaði verðlaunagripinn. Skúlptúrinn, prýðir fallega orðið “hugrekki” sem hefur verið einkennisorð Mia Magic og er tekið úr fyrstu bókinni, Mía fær lyfjabrunn.









Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -