Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Karl Ágúst greindist með heilaæxli: „Það er breytt starfsemi heilans sem háir mér“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Karl Ágúst Úlfsson hefur nú greinst með heilaæxli; hann er núverandi formaður Rithöfundasambands Íslands.

Hefur hann vegna þessa dregið sig í hlé frá þeim störfum af heilsufarsástæðum, en það er DV sem greindi fyrst frá.

Karl Ágúst birti tilkynningu um málið í Facebook-hópi félaga í Rithöfundasambandi Íslands. Í færslu Karls Ágústs kemur fram að hann greindist með æxlið fyrir þremur mánuðum síðan og reyndist það vera góðkynja; var það skorið burt í aðgerð sem heppnaðist afar vel.

Útlitið hjá Karli Ágústi er því gott; samt er langt þangað til hann hefur endurheimt fyrri styrk.

„Kæru félagar Á aðalfundi RSÍ á síðasta ári var ég endurkjörinn formaður til tveggja ára. Í ljósi þess reiknaði ég með að gegna því starfi í sex ár samanlagt, eða frá 2018 til 2024. En ekki er framtíð manns alltaf fyrirsjáanleg og nú hefur komið í ljós að svo muni ekki verða.

Það eru heilsufarsleg skakkaföll sem valda því. Fyrir um það bil þremur mánuðum var ég greindur með heilaæxli. Það reyndist vera góðkynja, ég var snarlega skorinn og æxlið fjarlægt. Aðgerðin heppnaðist vel, en ég á þrátt fyrir það langt í land með að stunda þau störf sem ég hafði tekið að mér.

- Auglýsing -

Eitt af þeim er formennska RSÍ.

Áhrif skurðaðgerðar á heila manns geta verið mikil og erfið viðureignar. Aðgerðin dró stórlega úr líkamlegri getu minni, en ég hef náð að endurheimta hluta hennar með sjúkraþjálfun.

Það er þó einkum og sér í lagi breytt starfsemi heilans sem háir mér og á að öllum líkindum eftir að skila sér til baka á löngu tímabili. Það hefur kveikt hjá mér alvarlegan efa á að ég búi nú um allnokkurt skeið yfir andlegri og vitsmunalegri getu sem mér þykir nauðsynleg til að sinna formennsku sambandsins jafn vel og æskilegt er. Af þeirri ástæðu óska ég eftir að stíga út úr starfi formanns RSÍ. Ég mun sem sagt ekki gegna embættinu fram að aðalfundi ársins 2024.

- Auglýsing -

Margrét Tryggvadóttir varaformaður mun gegna skyldum formanns þangað til annað verður ákveðið.

Mér þykir afar vænt um Rithöfundasamband Íslands og hef tekið að mér margvísleg verkefni fyrir það á þeim fjörutíu árum sem liðin eru frá því ég gerðist þar félagi. Ég hef haft mikla ánægju af starfi sem formaður og þykir því býsna sárt að kveðja það fyrr en ég ætlaði.

Ég tel það þó rétta ákvörðun og óska eftir að einhver taki við keflinu sem ræður við það betur en ég um þessar mundir. Loks vil ég þakka það traust sem mér hefur verið sýnt og gott samstarf við annað stjórnarfólk, samninganefndir og alla þá sem tekið hafa að sér að þjóna hagsmunum rithöfunda á öllum sviðum. Bestu kveðjur til ykkar allra Karl Ágúst Úlfsson.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -