Hundasveitin óskar eftir aðstoð almennings í leit að týndum hundi. Leit hefur staðið yfir síðan um verslunarmannahelgina. Sandra Ósk Jóhannsdóttir sem fer fram fyrir hönd Dýrfinnu og Hundasveitarinnar biðlar til almennings um aðstoð við leitina: „Við þurfum hins vegar fleiri augu og biðjum við alla sem eiga leið þarna á hálendinu að hafa augun opin.“
Ronja er eins og hálfs árs gamall íslenskur bordercollie blendingur sem týnist í pössun í Hrunamannahreppi upp á hálendi um klukkan fjögur, 31. júlí síðastliðinn. Ekkert hefur sést til hennar þrátt fyrir mikla leit. Leitað hefur verið fótgangandi, á hestum, fjórhjólum, með drónum og flugvélum.
Meðfylgjandi er kort af svæði og hnitin eru: L 64 28 221 / B 19 44 510.