- Auglýsing -
Rétt í þessu birti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu á Facebook síðu sinni. Auglýsir hún þar eftir konu sem ók BMW bifreið sinni á tvær unglingsstúlkur á rafskutlum síðastliðinn laugardag. Varð óhappið á Dalvegi í Kópavogi. Konan stoppaði og spjallaði við stúlkurnar og skutlaði þeim svo á Mjóddina. Þær fóru svo á slysadeild seinna.
Hér er tilkynningin í heild sinni:
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar konu sem ók BMW-bifreið á tvær unglingsstúlkur á rafskútu á Dalvegi í Kópavogi laugardagskvöldið 6. nóvember sl. Tilkynning um slysið barst kl. 20.34, en það átti sér stað nokkru áður. Konan nam staðar á vettvangi, ræddi við stúlkurnar og ók þeim síðan í Mjóddina. Stúlkurnar fóru síðar á slysadeild.
Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi.
Konan er beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. Geti aðrir veitt upplýsingar um málið eru hinir sömu beðnir um að hafa samband, en upplýsingar má einnig senda í tölvupósti á netfangið [email protected]