Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

„Nú stíga margir fram og vilja nota þessar skotárásir til að sussa á gagnrýnendur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og sósíalisti, varar við því að fólk misnoti hræðilega árás á Dag B. Eggertsson borgarstjória til að þagga niður í öllum gagnrýnendum. Hann nefnir sem dæmi að hægrimenn hafi nýlega lagt búsáhaldabyltinguna að jöfnu við atburðina í Washington fyrr í þessum mánuði.

„Auðvitað fordæmir allt fólk skotárásir á hús og bíla. Og ég auðvitað líka. Skotvopn eru ekki tjáningartæki heldur ofbeldistól, byssukúla er ekki innlegg í umræðu heldur hótun, ógn og ofbeldi. Það er auðvirðilegt að skjóta á hús eða bíla í skjóli nætur, skammarlegt. Ég finn til með Degi B. Eggertssyni og hans fallegu fjölskyldu. Húsbrot og innrás á þau svæði sem við töldum að væri helg hefur meiri áhrif á okkur en við getum séð fyrir. Þetta eru árásir á friðhelgi okkar. Og þess vegna eru þær alvarlegar, svívirðilegt ofbeldi,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir hættulegt að draga of miklar ályktanir af árásum á stjórnmálafólk. „Ég hvet fólk hins vegar að fara varlega í að eigna öðru fólki að hafa ýtt undir þá ákvörðun óþekkts manns að fremja þessi ódæði. Það eru engin tengsl á milli búsáhaldabyltingarinnar og þessara skotárása, engin tengsl á milli þeirra og almennrar stjórnmálaumræðu í landinu og þau sem taka þátt í henni bera enga ábyrgð á þessum árásum,“ segir hann.

„Það er fráleitt að draga sömu ályktanir af þessum árásum, sem svo sannarlega eru afmörkuð atvik, einsdæmi og blessunarlega frávik í okkar annars friðsama samfélagi, og dregnar hafa verið af árásinni á þinghúsið í Washington, líflátshótunum sem þarlent stjórnmálafólk hefur fengið, ráðagerðum að ræna embættismönnum og drepa. Þau sem fara um með ofbeldi í Bandaríkjunum tilheyra ofbeldishreyfingu sem hefur notað hótanir, skemmdarverk, hryðjuverk, morð og ofbeldi árum og áratugum saman; hreyfing sem byggir á sannfæringu um að tiltekinn hópur hafi ætíð rétt á að beita aðra ofbeldi.“.

Gunnar Smári minnir á að yfirleitt sé vanstillt fólk sem hagi sér svo. „Skotárásir á flokksskrifstofur og bíl borgarstjóra eru alvarlegar á eigin forsendum, verk einfara um nótt en ekki hluti af pólitísku aðgerðum hreyfingar sem sækist eftir völdum í samfélaginu. Fyrir skömmu notuðu hægri menn árásina á þinghúsið í Washington til að grafa undan því fólki sem tók þátt í búsáhaldabyltingunni í kjölfar bankaránanna miklu og mótmælendum almennt. Nú stíga margir fram og vilja nota þessar skotárásir til að sussa á gagnrýnendur, mótmælendur og aðra andstæðinga valdhafa og óbreytts ástands. Það er fráleitt og því fólki til skammar sem tengir þarna á milli,“ segir Gunnar Smári.

„Hitt er annað mál að fólk ætti að fara vel með tjáningarfrelsi sitt, nota það af afli til að gagnrýna samfélag ójöfnuðar og óréttlætis en ekki til að skemma og meiða. En við þurfum ekki skotárás á hús eða bíl til að minna okkur á þetta. Það getur aldrei verið leiðsögn að hegða sér svo í almennri umræðu að það leiði ekki til skotárása vanstillts manns um nótt.“

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -