Föstudagur 26. apríl, 2024
2.6 C
Reykjavik

Nýjar upplýsingar hafa komið fram í rannsókn lögreglu á meintu kynferðisbroti Arons Einars

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Nýrri rannsókn á meintu kynferðisbroti Arons Einars Gunnarssonar, landsliðsmanns í knattspyrnu, árið 2010 miðar vel að sögn Ævars Pálma Pálmasonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Þetta kemur fram á vef RÚV.

RÚV sendi fyrirspurn til kynferðisbrotadeildar og í skriflegu svari við staðfestir Ævar Pálmi að ný gögn hafi komið fram; gögn sem urðu til þess að málið var tekið aftur til rannsóknar. Hann vildi þó ekkert segja til um hvaða gögn það eru.

Rannsókn á máli Arons Einars hófst að nýju í september að beiðni brotaþola; Stuttu áður hafði Aron Einar gefið út yfirlýsingu þar sem hann sagðist vilja ræða við lögreglu; að fá að gefa skýrslu um málið en Aron Einar sver af sér allar ásakanir.

Lögregla veitir ekki upplýsingar að svo stöddu um hvort skýrsla hafi verið tekin af Aroni eða einhverjum öðrum vegna þessa máls, en komið hefur fram að annar – ónafngreindur – fyrrum landsliðsmaður sé einnig undir smásjá lögreglu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -