Útlendingum í Facebook hópnum Stupid things tourists do in Iceland er gróflega misboðið yfir meðferð á hvalnum sem strandaði nærri Garðskaga á Reykjanesskaganum.
Olga nokkur vekur athygli á því að bæði ferðamenn og heimamenn stilli sér upp við hvalinn og taki mynd. Sumir ganga svo langt að þeir eru komnir upp á hræið sem þó gæti sprungið. „Börn og fullorðnir leika sér á hræinu,” segir Olga.
Ótal manns er sammála henni og eru flestir þeirra útlenskir. Algengt stef er að þetta sé gróf vanvirðing við tignarlegt dýr. Sharon segir til dæmis: „Það er búið að breyta dauða þessa fallega dýrs í skemmtiatriði.”
Sandra nokkur bendir svo á hættuna sem gæti skapast. Sandra: „Hversu heimskur getur þú verið að gera svonalagað? Dýrið hefði átt að springa meðan þau voru ofan á því, það hefði kennt þeim lexíu.”
Nokkrir Íslendingar taka þó undir, líkt og Katrín nokkur. Hún skrifar: „Frábært, lík að dauðri lífveru. Best að klifra upp á dýrið og hoppa á því eins og náttúrlegum hoppukastala. Úrkynjuð óvirðing.”
Þessu hneykslaða fólki var svo endanlega ofboðið þegar einn deildi mynd þar sem sjá má að einhver hefur krotað typpi á hræið. „Algör hryllingur,” segir Kiana nokkur.