Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Samfélagið brást Heiðrúnu: „Ég er fucked, mamma er bipolar og stjúppabbi minn var barnaníðingur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Niðurstaða rannsóknar Kolbrúnar Kolbeinsdóttur kynjafræðings sem tók viðtöl við átta konur sem eru heimilislausar og halda til í Konukoti, er ekki upplífgandi: Samfélagið brást konunum þá og bregst þeim aftur núna.

Fimm af þessum átta viðmælendum urðu fyrir sifjaspelli eða barnaníði feðra sinna eða stjúpfeðra.

Kolbrún kemur fram í þætti Ásdísar Olsen, Undir yfirborðinu, sem er á dagskrá Hringbrautar og verður sendur út í kvöld kl. 20.

Ásdís Olsen.

Í þættinum ræðir Ásdísi Olsen við Kolbrúnu, sem segir að það sé til háborandi skammar hvernig búið sé að þessum hópi kvenna í samfélagi okkar; þjónusta við þær er ekki í samræmi við ofbeldis- og áfallasögu þeirra; og þá er Konukot óviðunandi húsnæði.

Konurnar áðurnefndu eru á aldrinum 25 til 60 ára; dvöldust þær í Konukoti á þeim tíma er rannsóknin fór fram.

Allar konurnar nema ein, áttu börn, og samtals áttu þær 16 börn.

- Auglýsing -

Kemur fram að af átta viðmælendum höfðu sjö glímt við vímuefnavanda. Þá einkenndust uppeldisaðstæður kvennanna af alvarlegri vanrækslu, afskiptaleysi sem og ástleysi. Allar glíma þær við skaðlegan heilsufarsvanda á fullorðinsárum; fíknsjúkdóma, geðsjúkdóma, líkamleg veikindi og útilokun frá fjölskyldum sínum.

Heiðrún tjáir sig um æsku sína í rannsóknarviðtalinu:

„Ég bara fucked sko. Það var alveg þannig. Það var mikill alkóhólismi, mamma mín er bipolar, stjúppabbi minn var bara fáviti sko. Hann var barnaníðingur, þegar ég lít yfir æskuna mína, þá sé ég bara svart. …. æskan var bara ömurleg sko, þannig séð, ég fór í þrjá skóla, einelti í tveimur, og svona, síðasti skólinn fínn. Svo náttúrulega einhvern veginn byrjaði ég í neyslu beint eftir grunnskóla og verð svo bara ólétt 16 ára sko. Svo er svolítið búið að vera downhill from there. …. þegar ég er, svona horfi til baka, þú veist, eins og þegar ég lít yfir æskuna mína, þá sé ég bara svart. Þú veist, þetta er bara svona, þessi tími var bara hræðilegur.“

- Auglýsing -

María ólst upp hjá föður sínum sem misnotar hana kynferðislega frá 9 ára aldri. Þegar hún er beðin að meta hvað var erfiðast í rannsóknarviðtalinu, flæða tárin og hún tekur sér hlé til að jafna sig. Hún segir misnotkunina erfiðasta en það sé ekki lengur vont „bara hér í hausnum“ og bendir á höfuðið, því þaðan hverfa ekki minningarnar.

Ásdís lýsir veikindum móður sinnar, vanrækslu og óeðlilegri ábyrgð sem lögð var á hana sem barn:

„Mamma mín er rosa veik á geði. Ég vakna með litla bróður mínum, klæddi hann og labbaði með hann í leikskólann, labbaði í skólann. Og svo var allur dagurinn í skólanum, þá var ég að hugsa hvernig ég ætti, hvort mamma myndi hleypa okkur inn klukkan fimm. Eða hvernig ég ætti þá að gefa honum að borða. Þetta var bara stanslaust, einhver ábyrgð sem ég kunni ekki að taka.“

Vert er að hvetja fólk til að horfa á þáttinn, en hann er sem fyrr segir á dagskrá Hringbrautar klukkan 20 í kvöld.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -