Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Segir meirihlutann banna umræða um málefni dótturfyrirtækis OR: „Laumuspil og leyndarhyggja“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að „borgarfulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar hafa bannað að umræða um málefni Ljósleiðarans, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur, verði á dagskrá næsta borgarstjórnarfundar, sem haldinn verður þriðjudaginn 20. desember.“

Þar hugðist Kjartan „ræða almennt um stöðu Ljósleiðarans og Orkuveitunnar og spyrja borgarstjóra hvaða áhrif síðustu fjármálagerningar fyrirtækjanna hafi á stöðu Reykjavíkurborgar og fjárhagsáætlun hennar, sem samþykkt var fyrir rúmri viku.“

Hann er klár á því að „slíkt bann er brot á ákvæðum 27. greinar sveitarstjórnarlaga og 34. greinar samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar en þar er skýrt kveðið á um að borgarfulltrúi/sveitarstjórnarmaður eigi rétt á að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar hvert það málefni, sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess. Borgarstjórnarmeirihlutinn hefur enga heimild til að hafna því að löglega fram borið mál, sé sett á dagskrá borgarstjórnarfundar. Engin fordæmi eru fyrir slíku umræðubanni í borgarstjórn Reykjavíkur.“

Kjartan nefnir einnig að „með slíku banni gerist meirihlutinn sekur um valdníðslu og einræðistilburði. Rétt er að benda á að samkvæmt sveitarstjórnarlögum er heimilt að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Meirihlutinn hefði þannig getað samþykkt að halda fund fyrir luktum dyrum ef hann telur að málefni Ljósleiðarans og Orkuveitunnar þoli ekki dagsins ljós. Laumuspil og leyndarhyggja hafa einkennt vinnubrögð borgarstjórnarmeirihlutans í málinu.“

Hann segir að „kjörnir fulltrúar almennings og stjórnarmenn OR hafa hvað eftir annað neitað að tjá sig um málefni Ljósleiðarans. Gerist það þrátt fyrir að miklar umræður hafi átt sér stað í fjölmiðlum um fyrirhuguð kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og þjónustusamning milli fyrirtækjanna. Ljóst er að umrædd ákvörðun er mikils háttar og að auki um að ræða margra milljarða kaup og fjárfestingu utan skilgreinds starfsvæðis OR.“

Að mati Kjartans er mikilvægt „að fram fari umræða á vettvangi borgarstjórnar um þennan viðskiptasamning og þá stefnubreytingu, sem hann hefur í för með sér fyrir Ljósleiðarann, OR og Reykjavíkurborg. Slíka umræðu er vel hægt að taka á grundvelli upplýsinga, sem þegar hafa verið gerðar opinberar og ræddar í fjölmiðlum.“

- Auglýsing -

Hann er klár á því að „tilgangurinn með umræðubanni borgarstjórnarmeirihlutans er því greinilega sá að koma í veg fyrir umræðu sem meirihlutanum finnst óþægileg; það er um stórfellda lántöku Ljósleiðarans og áhrif hennar á fjárhagsáætlanir Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar. Þá er ljóst að borgarstjóri og borgarfulltrúar meirihlutans vilja firra sig ábyrgð á málinu en varpa henni þess í stað á stjórn Orkuveitu Reykjavíkur eftir því sem kostur er.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -