Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Skipverjar Júllans hafa hætt í hrönnum – 12 farnir eftir frægan Covid-túr

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Síðan frystitogarinna Júlíus Geirmundsson frá Ísafirði, oft kallaður Júllinn, fór í hinn fræga Covid-túr hafa 12 skipverjar hætt störfum og snúið sér að öðru. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs hættu tveir þeirra af öðrum orsökum en 10 beinlínis vegna þess hvernig útgerðin, Hraðfrystihúsið Gunnvör, tók á málum

Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá var frystitogaranum sigld í land eftir að langstærstur hluti áhafnarinnar veiktist af Covid-19 á miðunum. Alls sýktust 22 af 25 manna áhöfn togarans.

Allan túrinn voru menn að veikjast einn og einn. Fæstir urðu mjög veikir en þó var undantekning þar á. Það var hins vegar ekki gert fyrir en þremur vikum síðar þegar skipverjar voru margir hverjir orðnir hundveikir og umdæmislæknis sóttvarnar á Vestjörðum hafði ítrekað lagt til að togaranum yrði siglt í land. Þeim tilmælum var ekki sinnt.

Sveinn Geir Arnarsson skipstjóri stýrði Júllan í hinum umdeilda Covid-túr. Hann var á endanum kærður fyrir afglöp í starfi og játaði sök fyrir Héraðsdómi Vestfjarða. Þar var Sveinn sviptur skipstjórnarréttindunum í fjóra mánuði og sektaður um 750 þúsund eins og áður segir, fyrir brot á sjómannalögum.

Sveinn skipstjóri var hins vegar sendur út sem stýrimaður skipsins í túr þess snemma á árinu. Samkvæmt heimildum Mannlífs hlaut sú ákvörðun útgerðarinnar misgóðar undirtektir skipverjanna. Sú staða þýddi að Sveinn er næsti undirmaður skipstjóra og í raun æðsti maður skips í hálfan sólarhring meðan skipstjóri er í koju.

Nú er svo komið að 12 skipverjanna hafa horfið á braut og yfirgefið Júllann.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -