Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, nýtti tækifærið er Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATÓ, heimsótti höfuðborg Úkraínu, Kiev, í gær, til að þrýsta á um afhendingu fleiri orrustuþotna, brynvarinnar farartækja sem og langdrægra eldflauga.
Hafa nokkur ríki bandalagsins látið þotur frá gömlu Sovétríkjunum af hendi, en engar nútímaþotur á borð við hinar bandarísku F-16.
Þá hafa ríkin verið heldur treg að afhenda langdrægar eldflaugar af ótta við að þeim verði beint að ýmsum skotmörkum í Rússlandi.
Jens Stoltenberg áréttaði samstöðu með Úkraínumönnum; Zelensky þó sagði tímabært að Úkraínu verði boðin aðild að NATÓ.
Stoltenberg sagði inngöngu verða til umræðu á leiðtogafundi bandalagsins í júlí; lofaði engu; sagði þó Úkraínu eiga heima í bandalaginu.