Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Eiríkur Jónsson kemur upp um Brynjar – Laug að hann væri hættur á Facebook

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eiríkur Jónsson, fjölmiðlamaður er oft með puttann á púlsinum þegar kemur að málum sem fáir spá í. Í dag kom hann upp um Brynjar Níelsson, nýskipaðan aðstoðarmann Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Það gerði hann á fréttasíðu sinni eirikurjonsson.is.

Eins og alþjóð veit tilkynnti Brynjar nýverið að hann væri hættur á Facebook vegna þess að hann fékk nýja starfið hjá Jóni.

„Jæja, nú þarf ég að kveðja fésbókina tíma­bundið. Í nýju djobbi er ekki gert ráð fyrir á­byrgðar­lausu glensi á sam­fé­lags­miðlum,“ sagði Brynjar fyrir viku.

Eiríkur kom sem sagt upp um Brynjar því samkvæmt rannsókn hans virðist Brynjar alls ekki hættur á Facebook. Birtir hann skjámynd af „læki“ frá Brynjari við færslu Björns Bjarnasonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins þar sem Björn gagnrýnir fréttaflutning Rúv af málefnum dómsmálaráðherra.

Hér má sjá lækið hans Brynjars

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -