Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Grútarmengun á Eskifirði líklegast af mannavöldum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Allar líkur benda til þess að grútarmengun sem varð á Eskifirði á þriðjudagskvöld, hafi orðið til vegna mannlegra mistaka.

Austurfrétt segir að það sé mat Hauks Jónssonar, verkstjóra hjá útgerðarfyrirtækinu Eskju en böndin bárust fljótlega að Eskju er langir taumar af lýsisgrút sáust víða í sjónum og í fjörum fjarðarins.

„Það kom í ljós að það voru menn að störfum í fiskimjölsverksmiðjunni að reyna að losa nokkra stíflaða krana en það gekk eitthvað brösuglega og það náðist ekki að klára áður en þeir hættu svo að vinna síðdegis á þriðjudag. Það var svona skolvatn í tanka og mér finnst líklegt að það hafi bara losnað eftir að þeir fóru af staðnum. Það er svona mín skoðun að þetta gæti hafi verið ástæðan fyrir þessu.“

Um leið og mengunarinnar varð vart, sendi Haukur hreinsunarflokk af stað en mest var um grút í Mjóeyrarfjöru en tókst að hreinsa það samdægurs.

„Við erum búnir að fara aftur þangað í dag og taka stöðuna og þar hefur ekkert bæst við sem betur fer. Það er verktaki á okkar vegum að fara yfir fjörurnar og tekur það sem hægt er að taka með góðu móti en eitthvað er eftir ennþá og spáin á morgun lofar ekki góðu til að halda áfram. En við reynum okkar besta og erum að fylgjast vel með,“ sagði Haukur í samtali við Austurfrétt á föstudaginn.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -