Íslensk kona, sem lenti í alvarlegu slysi á Tenerife á sunnudag, liggur þungt haldin á sjúkrahúsi á eynni, en vinkona hennar, sem slasaðist líka illa, er ekki eins þungt haldin, samkvæmt heimildum Mannlífs.
Í það heila voru það fimm íslenskar konur sem slösuðust þegar króna pálmatrés brotnaði af og féll niður á þær; þar sem þær sátu að snæðingi í Las Verónicas, við Playa de las Americas ströndina.
Upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, Sveinn H. Guðmarsson, hefur staðfest að leitað hafi verið til kjörræðismanns á Kanaríeyjum vegna slyssins.
Tvær af konunum fimm slösuðust alvarlega og samkvæmt spænska vefmiðlinum Diario de Avisos, hlaut ein konan marga alvarlega áverka og önnur hlaut alvarlega áverka á andliti og fótum; sú þriðja fjölmarga minni áverka. Hinar tvær konurnar eru minna slasaðar.
Pálmatré geta verið á bilinu 7 til 12 metrar á hæð og króna þessara trjáa getur verið mörg hundruð kíló að þyngd.
Til að bæta gráu ofan á svart þá komu til skjalanna bíræfnir þjófar, á meðan konurnar lágu slasaðar, sem gerðu sér lítið fyrir stálu símum frá þremur kvennanna.
Hér að neðan má sjá myndband af vettvangi þar sem slökkvilið eyjaskeggja brunar á slysstaðinn: