Það virðist nokkuð létt yfir Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni eftir að ríkisstjórnin tilkynnti um allsherjar afléttingu vegna Covid-19. Svo létt er yfir honum að hann brast í söng er hann sat í förðun fyrir sjónvarpsviðtal á RÚV þegar fréttakonan Sigrún Hilmarsdóttir laumaði að honum myndavél og spurði hvort faraldrinum væri núna lokið.
Þórólfur brosti í myndavélina og tók frægan lagbút úr Eurovision söngvakeppninni sem söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir gerði ódauðlegt. Þórólfur söng einfaldlega:
„Is it true, is it over?“
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að aflétta öllum samkomutakmörkunum í landinu, sem og á landamærunum. Afléttingarnar taka gildi á miðnætti í kvöld. Einangrun smitaðra verður einnig afnumin.
Ef allt gengur eftir þá ætti álagið á Þórólfi að minnka til muna á næstunni og því eðlilegt að það sé létt yfir honum þessa dagana.
Myndbandið með söng sóttvarnarlæknis má finna hér fyrir neðan.
Hér kemur embed-kóði fyrir myndbandið, til að setja inn í fréttina:
— Maria Sigrun Hilmars (@MariaSigrun) February 23, 2022