Þriðjudagur 30. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Ljósainnsetning Amnesty International – Þitt nafn bjargar lífi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mannréttindasamtökin Amnesty International standa í fyrir mannréttindaherferðinni Þitt nafn bjargar lífi. Í dag kl. 17 í anddyri bílakjallara Hörpu verður tilkomumikil, gagnvirk ljósainnsetning frumsýnd.

 

Ljósainnsetningunni er ætlað að vekja athygli á undirskriftasöfnun í stærstu alþjóðlegu mannréttindaherferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi og skapa víðtæka vitundarvakningu meðal almennings á Íslandi um hvernig má með einföldum en áhrifaríkum hætti hafa jákvæð áhrif á líf þolenda mannréttindabrota og dreifa boðskapnum. Ljósainnsetningin er unnin í samstarfi við auglýsingatofuna Kontor, margmiðlunarfyrirtækið Gagarín sem hlotið hefur fjölda viðurkenninga fyrir upplifunarhönnun og kvikmyndafyrirtækið Falcor.

Gestum er boðið að skrifa undir tíu áríðandi mál barna og ungs fólks undir 25 ára aldri sem sæta mannréttindabrotum víðs vegar um heiminn. Hér er hægt að lesa nánar um málin tíu á vefsíðu Amnesty.

Í gagnvirku ljósainnsetningunni birtist nafn þitt um leið og þú skrifar undir. Á sama tíma býðst þér að stíga inn í aðstæður þar sem mannréttindabrot eru framin og stöðva þau á táknrænan hátt með skuggamynd þinni.

Ætlunin er að þátttakendur fái sterka tilfinningu fyrir því hverju einföld undirskrift fær áorkað í baráttunni fyrir betri heimi og hvernig samstöðumátturinn skiptir öllu.

Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona setur viðburðinn formlega og fjórir landsþekktir leikarar munu leiklesa sögur þolenda frá Filippseyjum, Mexíkó, Íran og Suður-Súdan þar sem lögregluofbeldi, dauðarefsing, barátta fyrir réttindum kvenna og loftslagsréttlæti koma við sögu.

- Auglýsing -

Íslendingar hvattir til að taka þátt

Amnesty hvetur Íslendinga til að sýna þessu unga fólki stuðning sinn og styrk með því að setja nafn sitt á bréf til stjórnvalda sem fótumtroða mannréttindi þeirra.

Víðs vegar um heiminn munu hundruð þúsunda einstaklinga gera slíkt hið sama. Í gegnum árin höfum við sýnt í verki að samtakamáttur og þátttaka skilar árangri.

- Auglýsing -

Hér má lesa um hvernig þátttaka fólks hefur áhrif.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -