Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Ferðafélag Íslands og Háskólinn verðlaunuð

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Ferðafélag Íslands og Háskóli Íslands hlutu nýlega viðurkenningu Rannís fyrir vísindamiðlun með verkefninu „Með fróðleik í fararnesti“.
Verkefnið felur í sér fræðandi gönguferðir í náttúrunni þar sem fræða- og vísindafólk HÍ miðlar af þekkingu sinni til almennings, barna og ungmenna um fjölbreyttar rannsóknir, ekki síst á lífríki og umhverfi. Áhersla er lögð á markvissa og skemmtilega fræðslu um leið og boðið er upp á hreyfingu og samveru fyrir alla fjölskylduna.
Fræðagöngurnar byrjuðu sem nýjung í vísindamiðlun til almennings og var þeim strax afar vel tekið af almenningi. Markmiðið með ferðunum er að veita fólki á öllum aldri spennandi valkost til að hreyfa sig í borgarlandinu og fá að auki skemmtilegan og afar gagnlegan fróðleik um rannsóknir, nýsköpun, vísindi og fræði og í raun flest það sem ber fyrir augu í göngunum.

Pöddur og fuglar

Ætlunin í upphafi var að brydda upp á ferðunum sem nýjum vísindamiðlunarvalkosti fyrir fjölskyldur á aldarafmæli Háskóla Íslands 2011 í samstarfi við Ferðafélag barnanna sem er angi undir FÍ. Hins vegar urðu vinsældirnar það miklar að ákveðið var að halda verkefninu áfram. Á yfirstandandi ári hefur verið metþátttaka í öllum ferðum, en aldrei í 12 ára sögu verkefnisins hafa fleiri mætt í fræðagöngurnar. Umfjöllun um verkefnið hefur einnig verið afar ríkuleg í fjölmiðlum sem hefur aukið áhrif miðlunarinnar á samfélag.
Pöddur, fjara, fuglar, fiskar, samfélag og sjálfbærni

Forsetinn mætti

Gríðarlegur fjöldi vísindafólks hefur stýrt þessum göngum en líklega er enginn þekktari en Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við HÍ og núverandi forseti Íslands. Hann leiddi göngu ásamt Helga Gunnlaugssyni, prófessor í afbrotafræði við HÍ, en þeir fjölluðu um mótmæli í miðborginni og glæpi og refsingu í sögulegu samhengi. Af öðrum viðfangsefnum má nefna norðurljós, pöddur, fiska og farfugla og hvernig megi nýta afurðir náttúru Íslands, eins og krækling, jurtir og sveppi. Fræðsla um jarðfræði, eldgos og jökla hefur líka verið vinsæl, auk þess sem rætt hefur verið um sögu, menningu, nýsköpun og sjálfbærni.
Frá verðlaunaafhendingunni.
Mynd: FÍ
Áslaug Árna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar afhenti verðlaunin. Ólöf Kristín Sívertsen forseti FÍ veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd félagsins og sagði verðlaunin fela í sér mikinn heiður og viðurkenningu. Ólöf þakkaði Háskóla Íslands fyrir frábært samstarf sem og öllum þeim fjölmörgu aðilum sem lagt hafa verkefninu lið.
.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -