Miðvikudagur 1. maí, 2024
7.1 C
Reykjavik

Heimir Már vissi ekki af stuðningi Samherja: „Hinum sömu til ævarandi skammar og minnkunar“.

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
„Ef rétt er að Samherji og fólk á hans vegum hafi reynt að hafa áhrif á úrslit formannskjörs í BÍ er það þeim hinum sömu til ævarandi skammar og minnkunar,“ skrifar Heimir Már Pétursson, formannframbjóðandi í Blaðamannafélagi Íslands, um þær tilraunir sem Kjarninn upplýsti um að Samherji hefði gert til að fyrirbyggja að Sigríður Dögg Auðunsdóttir yrði kosinn formaður. Heimir, sem tapaði í einvíginu við Sigríði Dögg, segir í Facebook-færslu í gær að hann hefði fyrst heyrt af málinu í gær þegar Kjarninn birti gögn sem fengust í innbroti í tölvu Páls Steingrímssonar skipstjóra Samherja. Þar kom fram að skuggapenni hans, Þorbjörn Þórðarson, fyrrverandi fréttamaður Stöðvar 2, hafði heyrt af yfirvofandi yfirtöku fréttamanna RÚV.

„Lítill fugl hvíslaði því að mér að hallarbylting væri í bígerð“

„Lítill fugl hvíslaði því að mér að hallarbylting væri í bígerð í Blaðamannafélagi Íslands. Fréttamenn RÚV eru víst í unnvörpum að skrá sig í félagið fyrir komandi kosningar. Þeir ætla víst að ná stjórn á því[…]Hinir þurfa að þjappa sér saman á móti henni[…]Mér skilst að þetta beinist að hluta til að okkur. Þeir ætla að nota félagið.“ skrifar Kjarninn upp úr leynigögnum skipstjórans.

Þorbjörn Þórðarsson, skuggapenni Samherja og fyrrverandi fréttamaður Stöðvar 2, vildi tryggja að Sigríður Dögg yrði ekki kosin.

Yfirlögfræðingur Samherja bað Þorbjörn síðan, samkvæmt gögnum Kjarnans, að hafa samband við reynslumikinn blaðamann til að undirstinga viðkomandi með frétt um þessa hallarbyltingu. Þorbjörn mun þá hafa skrifað að hann væri í góðu sambandi við viðkomandi blaðamann. Tilgangur þessa átti að vera að „vekja starfsfólk einkareknu miðlana til lífsins um að fjölmenna á aðalfundinn og kjósa Heimi“.

Heimir segist koma af fjöllum.
„Það var fyrst í dag að ég heyrði af meintum afskiptum einhvers hóps á vegum Samherja til að hafa áhrif á nýlegt formannskjör hjá Blaðamannafélagi Íslands þegar athygli mín var vakin á grein í Kjarnanum. Svo það sé sagt. Ef rétt er þá fordæmi ég tilraunir Samherja eða hverra annarra utan Blaðamannafélagsins til að hafa áhrif á innra starf félagsins,“ áréttar hann.
Pistill Heimis í heild sinni:
Það var fyrst í dag að ég heyrði af meintum afskiptum einhvers hóps á vegum Samherja til að hafa áhrif á nýlegt formannskjör hjá Blaðamannafélagi Íslands þegar athygli mín var vakin á grein í Kjarnanum.
Svo það sé sagt. Ef rétt er þá fordæmi ég tilraunir Samherja eða hverra annarra utan Blaðamannafélagsins til að hafa áhrif á innra starf félagsins.
Ég háði litla sem enga kosningabaráttu fyrir kjörið fyrir utan formlegan framboðsfund félagsins sem streymt var til félagsmanna. Ég hafði ekki samband við nokkurn félaga í aðdragana kjörsins til að óska eftir stuðningi við mig né til að hvetja fólk til að kjósa ekki Sigríði Dögg Auðunsdóttur. Ég sendi hins vegar nokkrum tugum félaga skilaboð á lokadegi kosninganna til að minna á hvenær kosningu lyki. Annað ekki.
Ég veit að nokkrir samstarfsmenn mínir sem vildu mér vel höfðu samband við nokkra vini sína og félaga á öðrum miðlum en okkar til að mæla með mér. Enginn, ekki nokkur maður, sem tengist Samherja hafði samband við mig til að bjóða fram stuðning sinn. Ef þeir hefðu gert það hefði ég sagt þeim sömu, ekki svo vinsamlega, að láta af öllum slíkum afskiptum.
Ef einhver í slagtogi við Samherja hefur beitt sér till að fá stuðning við framboð mitt, hefur það alveg örugglega ekki gagnast mér. Þvert á móti.
Blaðamannafélag Íslands er ekki fjölmennt félag og ég tel að félagsmenn flestir þekki nægilega vel til mín til að taka afstöðu til þess hvort þeir teldu mig heppilegan til forystu í félaginu okkar. Ég bauð mig fram til að efla félagið í samskiptum þess við útgefendur og umheiminn almennt og til að verja þau grundvallargildi sem félagið byggir á og koma fram í lögum þess og siðareglum.
Ef rétt er að Samherji og fólk á hans vegum hafi reynt að hafa áhrif á úrslit formannskjörs í BÍ er það þeim hinum sömu til ævarandi skammar og minnkunar.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -