Nýtt tölublað af Vín og mat er komið út. Þar má finna uppskriftir að ýmsum girnilegum réttum og uppskriftum sem smellpassa árstíðinni. Forsíðuviðtalið er að þessu sinni við Sindra Guðbrand en hann var valinn kokkur ársins 2023.
Hollur jarðaberjaís
Hráefni:
140 g jarðarber
½ x 405 g dós létt niðursoðin mjólk
500 g grísk jógúrt 0% fita
SKREF 1
Saxið helminginn af jarðarberjunum gróft og þeytið afganginn í matvinnsluvél eða með töfrasprota þar til þau verða að mauki
SKREF 2
Í stórri skál, hrærið niðursoðnu mjólkinni út í maukuðu jarðarberin og blandið síðan grískri júgúrt varlega saman við þar til allt hefur blandast vel saman. Bætið söxuðum jarðarberjum út í og hrærið.
SKREF 3
Skafið blönduna í brauðform eða ílát, setjið lokið á eða pakkið vel inn í plastfilmu og frystið yfir nótt þar til hún er orðin þétt. Taktu úr frystinum 10-15 mínútum áður en þú vilt bera ísinn fram. Þennan ís má frysta í allt að 1 mánuð.