Miðvikudagur 1. maí, 2024
7.1 C
Reykjavik

Guðrún Bergmann trúir á eðlufólk: „Við erum í umbreytingarferli“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í nýjasta Alkastinu settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Guðrúnu Bergmann og ræddu við hana um heima og geima. Guðrún hefur um árabil verið áberandi í íslensku samfélagi sem frumkvöðull, lífsstílsráðgjafi, uppreisnarseggur og almenn heilsuvera.

Guðrún Bergmann

Geimverur

Spjallið hófst á umræðu úr öðrum heimi, nánar tiltekið á heimsókn vera úr öðrum heimi til Íslands árið 1993, en þá höfðu verur af öðrum heimi boðað komu sína á Snæfellsnes. Fjöldi fólks lagði leið sína þangað til þess að verða vitni að opinberuninni en því miður létu geimverunar ekki sjá sig meðal almennings. Guðrún hefur það hins vegar eftir áreiðanlegum heimildum að geimverur hafi mætt á svæðið en út af umstangi og uppþoti í kringum mannskapinn sem hafði safnast þarna saman hafi þær aðeins opinberað sig fyrir fáum útvöldum.

Heimsóknir af þessu tagi eru hins vegar langt því frá að vera nýjar af nálinni. Í mörg þúsund ár hafa verur úr öðrum heimum lagt leið sína til Jarðarinnar og birst mannkyninu í alls kyns myndum. Allt frá tímum Forn-Egypta eru heimildir fyrir heimsóknum og samskiptum við verur frá öðrum heimum. Flestar þessara vera koma hingað til Jarðarinnar í friðsamlegum tilgangi en það er alls ekki algilt. Til eru hryllingssögur af fólki sem segist hafa verið brottnumið af geimverum og meðhöndlað eins og ómerkileg tilraunadýr.

Eðlufólkið

En furðuverurnar koma ekki aðeins utan úr geimnum, heldur býr hér á Jörðinni kynstofn sem kallaður hefur verið eðlufólkið. Þetta er lítill og lokaður hópur „fólks“ sem hefur það fyrir markmið að sölsa til sín peninga og völd í þeim tilgangi að ná heimsyfirráðum. „Strákar, munið þið eftir fyrstu Star Wars myndinni? Munið þið eftir barnum? Þar var eðla. Það var verið að sýna okkur þetta þá! Að þetta er til,“ sagði Guðrún og segir að kóngafólk Evrópu og aðrir innvenslaðir hópar hafa oft verið nefndir í þessu samhengi. Því tengt, barst talið að Klaus Schwab og Bill Gates sem Guðrún, Gunnar og Arnór telja klárlega vera foringja eðlufólksins hér á jörðinni. „Við erum í umbreytingarferli og það er verið að vinna að því að gera heiminn fallegri og við það þurfa sumir að fara,“ sagði Guðrún og talar um hitamynd sem náðist af Elísabetu II Bretlandsdrottningu. „Það er með blátt blóð, kalt blóð. Þegar það var tekin hitamynd af Elísabetu Bretlandsdrottningu og einhverjum öðrum hópi, þá kom rautt hjá öllum nema hjá henni kom blátt. Munið, þetta fólk giftist innbyrðis. Hvað hafa kóngafjölskyldur gert í gegnum tíðina? Gifst innbyrðis.“

- Auglýsing -

Það undarlega gerðist í upptöku þessa þáttar, að um það leiti sem foringjarnir voru nefndir á nafn í tengslum við eðluflokkinn, slökknuðu allar myndavélar á sér og því vantar myndefni síðasta hálftíman eða svo. Myndefnið er tekið upp á hefðbundna Iphone síma og grunur leikur á að flokkurinn hafi greiðan aðgang að hljóðnemum allra nettengdra tækja og alkoritminn lesi umfjöllun sem þessa sem hreina ógn við útfærslu hinnar miklu endurræsingar. Hljóðupptakan hélst þó heil til enda viðtalsins enda tekin upp á lokaðri hljóðrás sem eðlufólkið hefur engan aðgang að.

Kenningar Dr. Steven Greer

Kenningar Dr. Steven Greer voru mikið ræddar í þessum þætti en Dr. Greer heldur því fram að næsta sviðsetta ógn mannkyns verði innrás utan úr geimnum þar sem veruleg fólksfækkun verði útfærð í sjálfri innrásinni og þar eftir algjör yfirtaka svokallaðra djúpríkis globalista sem í áratugi hafa legið í skuggum stórríkja og skipulagt hina miklu yfirtöku sem mun knúa öll ríki heims í algjört gjaldþrot. Flokkurinn mun þá stíga inn og taka völdin með algjörum breytingum á allri samfélagsgerð og hagkerfi, ein stjórn sem vaktar allt og stjórnar öllu útfrá nýjum lagabókstöfum. 

- Auglýsing -

Eða eins og foringinn Schwab segir „Þú munt ekkert eiga en þú munt vera hamingjusamur.“

Ef geimverur og eðlufólk voru ekki nógu spennandi barst talið að fyrirbærinu „veiða og sleppa.“ Guðrún, sem er með áratuga reynslu af laxveiði, staðhæfði að löxum sem væri sleppt eftir að hafa barist fyrir lífi sínu væru meira og minna laskaðir af áfalli og geta ekki fjölgað sér í kjölfarið. Þá var einnig rætt um Endurræsinguna miklu, alheimssamsæri tæknirisa og University of small planets. 

Allt þetta og meira til í viðtalinu sem finna má á öllum helstu streymisveitum og í hlekknum hér að neðan.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -