Föstudagur 26. apríl, 2024
2.6 C
Reykjavik

LSH fékk óvenjustóra gjöf í dag – Nýtist vel í baráttunni við COVID-19

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala greindi frá því á upplýsingafundinum sem fram fór í dag að LSH barst óvenjustór gjöf í morgun með fraktflugvél að utan eða sautján nýjar öndunarvélar, sem eru þýskar.

Gefendur eru 14 íslensk fyrirtæki sem ekki vilja láta nafns síns getið. Auk þess var Landspítalanum gefinn ýmiss varnarbúnaður og lækningarvörur.

Aðspurður sagði Pál gjöfina vera að verðmæti um 100 milljónir króna.

„Það er hreint ó­trú­legt hvað lands­spítali nýtur mikillar vel­vildar allra lands­manna og það sést bæði á fjöl­mörgum gjöfum og hlýjum kveðjum og gjafirnar eru bæði stórar og smáar. Nú í morgun barst ó­venju stór gjöf með frakt­flug­vél að utan þegar Land­spítalinn fékk sau­tján nýjar og mjög full­komnar gjör­gæslu öndunar­vélar að gjöf,“ sagði Páll.

„Það eru fjór­tán fyrir­tæki í ís­lensku at­vinnu­lífi sem hafa tekið höndum saman um að fjár­magna og út­vega þessi tæki. Með þessu vilji fyrir­tækin leggja sitt af mörkum til að styðja við ís­lenskt heil­brigðis­kerfi á erfiðum tímum en fyrir­tækin sem standa gjöfinni kjósa að láta nafn síns ekki getið.“

Til viðbótar við öndunarvélarnar gefa fyrirtækin Landspítala sérstakan hlífðarfatnað og ýmsar lækningavörur. Um er að ræða 6.500 N95 sóttvarnargrímur, 1.000 varnargalla, 2.500 varnargleraugu og 400.000 veirupinna af ýmsum gerðum til sýnatöku. Undanfarið hefur gengið erfiðlega að panta nægilegt magn til landsins vegna umframeftirspurnar eftir pinnum á heimsvísu. Þetta mikla magn pinna er talið duga heilbrigðiskerfinu út árið og gott betur.

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -