Sunnudagur 5. maí, 2024
6.1 C
Reykjavik

Uppgjör hjá lögreglunni á Íslandi: „Aldrei lagt hald á meira magn af kókaíni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í nýrri færslu á samfélagsmiðlinum Facebook gerir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upp árið í löggæslu á landinu.

Meðal þess sem nefnt er í færslunni eru náttúruhamfarir víða um land og Leiðtogafundur Evrópuráðsins í maí. Þá handtók lögreglan á Íslandi um 7 þúsund einstaklinga og greint frá í færslunni að rán hafi aldrei verið jafn mörg og árið 2023. Einnig er sagt frá því að aldrei hafi verið lagt hald á meira magn af ákveðnum eiturlyfjum og á seinasta ári.

Hægt er að lesa færslu lögreglunnar hér fyrir neðan:

„Árið 2023 var viðburðarríkt hjá lögreglu. Náttúran lét finna fyrir sér með vatnavöxtum, snjóflóðum og jarðhræringum víða um land. Einna viðamestar voru jarðhræringar á Reykjanesi sem síðar leiddu til rýmingar Grindavíkurbæjar þann 10. nóvember og eldgoss norðan við Grindavík 18. desember.

Á árinu tókst lögregla jafnframt á við eitt stærsta löggæsluverkefni sem hún hefur sinnt er Leiðtogafundur Evrópuráðsins var haldinn hér á landi dagana 16. og 17. maí. Um gríðarlega viðamikið verkefni var að ræða sem nánast allir starfsmenn lögreglu komu að með einum eða öðrum hætti.

Fyrir utan þessi stóru verkefni hafa önnur verkefni lögreglu verið með hefðbundnu sniði. Um 400 mál berast lögreglu á hverjum sólarhring og felur um þriðjungur þeirra það í sér að lögregla þarf að koma á vettvang. Í aðkallandi verkefnum er lögregla að jafnaði átta mínútur á vettvang en um 13 mínútur þegar verkefni krefjast ekki mesta forgangs. Aðstoðarbeiðnir til lögreglu er margskonar og tengjast ekki alltaf afbrotum heldur einnig veikindum, slysum eða öðru sem fólk þarf aðstoðar með.

Flest brot eiga sér stað á höfuðborgarsvæðinu og þar eru flestir handteknir. Á árinu handtók lögregla um 7.000 einstaklinga og voru 3.700 þeirra vistaðir í fangageymslu, sumir oftar en einu sinni.

Rán hafa aldrei verið fleiri en árið 2023 en þau voru um hundrað talsins. Þá hefur lögregla orðið vör við aukinn vopnaburð og voru vopnaútköll lögreglu og sérsveitar fleiri en áður. Á sama tíma fækkar tilkynningum til lögreglu vegna kynferðisbrota um 30% miðað við meðal fjölda tilkynninga 3 ár á undan. Fjöldi heimilisofbeldisbrota er svipaður og fyrri ár en um 1.100 tilvik eru tilkynnt til lögreglu árlega.

- Auglýsing -

Athygli vekur að lögregla og tollur hafa aldrei lagt hald á meira magn af kókaíni og marijúana á íslenskri grundu en árið 2023.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -