Fimmtudagur 2. maí, 2024
6.1 C
Reykjavik

Samherji skilar góðri ávöxtun undir stjórn Þorsteins Más: Börnin fá milljarð króna í vasann

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Samherji og tengd félög skila að vanda góðum arði til eigenda sinna. Venjan hefur verið sú að samstæðan hefur ekki greitt út arð. Að þessu sinni er orðin breytinga á. Stærstu hluthafaranir færðu eignir sínar yfir á börn sín sem nú uppskera. Heimildin greinir frá því að  hluthafar útgerðarfélagsins Samherja, sem eru að mestu leyti börn stofnendanna Þorsteins Más Baldvinssonar og Kristjáns Vilhelmssonar, greiði sér út rúmlega einn milljarð króna í arð á þessu ári. Heimildin rekur að arðgreiðslan komi út úr Samherja hf., félaginu um útgerðarrekstur Samherja á Íslandi og í Færeyjum, og hins vegar út úr nýstofnuðu eignarhaldsfélagi, Látrafjöllum ehf., sem heldur utan um fjárfestingar félagsins.

Þunginn af arðgreiðslunni til barnanna skiptist nánast jafnt á milli félaganna tveggja.

Baldvin Þorsteinsson er stærsti eigandin Samherjafyrirtækjanna.

Langstærsti hluthafi Samherja og Látrafjalla er eignarhaldsfélagið K&B með 45,2 prósenta hlut í útgerðinni. K&B er í eigu Kötlu og Baldvins Þorsteinsbarna sem hvort um sig á 49 prósenta hlut í félaginu. Þorsteinn Már, sem rekur Samherja, á aðeins 2 prósent.

Næststærsti hluthafinn er eignarhaldsfélagið Bliki ehf., sem er í eigu Látrafjalla ehf., og þar með sömu hluthafa og eiga Samherja, með tæplega 10 prósenta hlut.

Fjögur börn Kristjáns Vilhelmssonar eiga svo tæplega 9 prósenta hlut hvert persónulega. Samtals 34,8 prósent, samkvæmt Heimildinni.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -