Fimmtudagur 2. maí, 2024
6.1 C
Reykjavik

Þjóðkirkjan vill læra af misrétti gagnvart hinsegin fólki innan kirkjunnar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þjóðkirkjan vill gera upp og læra af sögu misréttis gagnvart hinsegin fólki innan kirkjunnar. Til þess var streymdur kynningarfundir í dag á vegum kirkjunnar og Samtakanna ´78 þar sem verkefnið Ein saga- eitt skref var kynnt. Viðburðurinn átti að vera opinn öllum en vegna Covid-19 var honum streymt á netinu.

Fyrsta skref verkefnisins verður að safna persónulegum reynslusögum af fordómum og andstöðu Þjóðkirkjunnar við réttindi hinsegin fóks í gegnum árin. Á fundinum í dag flutti Þorbjörg Þorvaldssdóttir formaður Samtakanna ´78 nokkur orð og síðan tók biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, til máls. Streymið má sjá hér.

Undir verkefninu hefur verið upp sögusíða þar sem hver og einn, sem geymir sögu sem hann/hún/hán vill deila, getur fyllt út form og skilað inn. Sögunum verður safnað saman af Samtökunum ´78. Slóð sögusíðunnar er: https://einsaga.samtokin78.is.

Í var regnbogafáninn svo dreginn að húni við kirkjur víðs vegar um landið.Næsta vor verða síðan sögurnar gerðar opinberar. Sögurnar verða hengdar upp í kirkjum landsins, til vitnisburðar og lærdóms.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -