Miðvikudagur 1. maí, 2024
7.1 C
Reykjavik

Vísar fullyrðingum Ragnars Þórs á bug

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jó­hann­es Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóri Lind­ar­vatns ehf., segir fullyrðingar Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, um blekkingar og vandræði á Landssímareitnum úr lausu lofti gripnar.

„Mér er þó bæði ljúft og skylt að segja frá því að fullyrðingar Ragnars standast ekki skoðun. Staðreyndin er sú að framkvæmdir á Landssímareit eru í fullum gangi. Það starfa um 200 manns við verkefnið og hafa gert undanfarin misseri, sem er mjög jákvætt í þeim þrengingum sem standa nú yfir,“ segir Jó­hann­es Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóri Lind­ar­vatns, á Facebook og vísar þar í færslu sem Ragnar Þór birti á samfélagsmiðlinum í gær.

Í sinni færslu fjallaði Ragnar Þór um meint „brask og brall“ stjórnenda Icelandair og Samtaka atvinnulífsins, eins og hann orðar það. „Vinsamlega deildu ef þú telur að atvinnurekendur eigi að víkja úr stjórnum lífeyrissjóðanna og vilt vita hvernig 700 milljónum er skotið undan í braski og bralli stjórnenda Icelandair og SA,“ skrifaði Ragnar Þór á Facebook.

„Það væri ágætis byrjun að skoða braskið og brallið í kringum Lindarvatn ehf. (Hótelbyggingu á Landsímareit) sem útskýrir af hverju SA bregðist svo harkalega við gegn því að verkalýðshreyfingin sé að vakna af værum blundi innan stjórnar lífeyrissjóðsins? Þetta er eitt dæmi af fjölmörgum um tengsl SA við lífeyrissjóðina og fjárfestingar þeirra.“

„Til allrar hamingju eru fullyrðingar Ragnars Þórs um blekkingar og vandræði á Landssímareitnum úr lausu lofti gripnar.“

Í framhaldinu fer Ragnar Þór yfir tengsl Samtaka atvinnulífsins, SA, við lífeyrissjóðina, sem eiga Icelandair að stórum hluta, og fjárfestingar þeirra með því að benda á hvaða starfsmenn hjá SA störfuðu áður hjá Icelandair. Bendir hann þannig á að fyrrum forstjóri Icelandair Björgólfur Jóhannsson hafi einnig verið einnig formaður SA. „Hjá Icelandair störfuðu einnig Halldór Benjamín Þorbergsson og Davíð Þorláksson sem einnig stýrðu Lindarvatni ehf. (félagi sem reisir lúxushótel á Landsímareitnum). Fyrrum stjórnarformaður Lindarvatns var fjármálastjóri Icelandair group, Bogi Nils Bogason núverandi forstjóri Icelandair group,“ skrifar Ragnar Þór.

Fjallar Ragnar Þór ennfremur um forsöguna að kaupunum á Landsímareitnum og segir að líklega hafi Icelandair tapað háum upphæðum vegna fjárfestinga í verkefninu. „Allar líkur eru á að Icelandair hafi nú þegar tapað 1,87 milljarði króna á fjárfestingunni þar sem framkvæmdakostnaður virðist langt umfram virði og leigusamningur stendur undir. Lífeyrissjóðirnir voru fengnir til að setja 4 milljarða í verkefnið í formi skuldabréfakaupa en sjóðirnir hafa reyndar lýst því yfir að ekki verði settir meiri peningar í verkefnið,“ segir hann.

- Auglýsing -

Jóhannes segir að hingað til hafi hann ekki séð tilefni til að svara málflutningi Ragnars vegna þess hve fjarstæðukenndur hann er, en eftir þessi ummæli hans geti hann ekki stillt sig um það.

„Ragnar Þór Ingólfsson hefur undanfarna mánuði farið með himinskautum um verkframkvæmdir á Landssímareitnum. Hann heldur því fram að stjórnendur Lindarvatns, ráðgjafar og starfsmenn hafi tekið sig saman um að blekkja fé út úr lífeyrissjóðum sem hafa lánað fé til verksins. Fyrir ekki svo löngu síðan hélt Ragnar því fram að allar framkvæmdir væru stopp og aldrei stæði til að byggja á reitnum,“ segir Jóhannes og bendir á að það sé hins vegar öllum ljóst sem hafi átt leið hjá reitnum undanfarið að þar séu framkvæmdir langt komnar og reiturinn allur að taka á sig mynd.

- Auglýsing -

„Við þetta má bæta að framkvæmdirnar eru að fullu fjármagnaðar, auk þess sem framkvæmdakostnaður stefnir á að verða innan áætlana. Það er vissulega rétt hjá Ragnari að verkið hefur dregist talsvert frá því sem vonast var til í upphafi, en það á sér skýringar sem allir þekkja nú þegar,“ segir Jóhannes.

Hann segir einnig mikilvægt í þessu samhengi að lán Lindarvatns frá lífeyrissjóðunum er og hafi alltaf verið í skilum. Lífeyrissjóður verslunarmanna hafi fengið yfir hundrað milljónir í vexti og verðbætur frá Lindarvatni til þessa.

„Við þetta má bæta að framkvæmdirnar eru að fullu fjármagnaðar, auk þess sem framkvæmdakostnaður stefnir á að verða innan áætlana.“

„Til allrar hamingju eru fullyrðingar Ragnars Þórs um blekkingar og vandræði á Landssímareitnum úr lausu lofti gripnar. Hluthafar og stjórnendur Lindarvatns eru sannfærðir um að þegar framkvæmdum lýkur verði reiturinn lyftistöng fyrir borgarbúa og gesti okkar, sem ekki er vanþörf á, á þessu mikilvæga svæði í hjarta Reykjavíkur.

Sjón er sögu ríkari,“ skrifar Jóhannes og birtir með færslu sinni fyrir og eftir mynd af Landsímareitnum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -