Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Systkinin Ísold og Már eiga sigurlag jólalagakeppni Rásar 2

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ísold Wilberg Antonsdóttir og Már Gunnarsson flytja og semja lagið Jólaósk sem vann jólalagakeppni Rásar 2 í ár.

 

Textinn fjallar um hindranir sem allir þurfa að yfirstíga einhvern tímann á lífsleiðinni og hversu mikilvægt það er að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur og finna gleði í litlu hlutunum, sérstaklega um jólin. Stefán Örn Gunnlaugsson tekur upp lagið og spilar á öll hljóðfæri nema píanó sem Már Gunnarsson spilar á. Sigurdór Guðmundsson sér um hljóðblöndun hjá Skonrokk Studio.

Már er einnig afreksmaður í íþróttum og hefur keppt fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi og tveimur Evrópumeistaramótum. Hann gat ekki veitt viðurkenningunni móttöku því á sama tíma var hann staddur á Hótel Sögu að taka á móti verðlaunum sem íþróttamaður ársins frá íþróttasambandi fatlaðra. Már er einnig handhafi Kærleikskúlunnar í ár.

Sjá einnig: Már Gunnarsson hlýtur Kærleikskúluna 2019

Jólaósk var að lokum valið það besta. Í öðru sæti lenti Hversu fagurt væri það? með Kristjönu Stefánsdóttur og Betlehembræður & JGG í því þriðja með lagið Einn um jólin. Um fjörutíu lög bárust í jólalagakeppnina í ár, átta lög voru valin til úrslita og gátu landsmenn kosið á milli þeirra til móts við dómnefnd Rásar 2.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -