Móðir nokkur talar um vandræði sín og áhyggjur inn á fjölmennum mæðrahóp á Facebook. Hún segir: „Dagmóðirin sem sonur minn á að byrja hjá eftir tvær vikur, er sú sem var handtekin í sjónvarpinu í gær. ég veit ekki hvað ég á að gera því ég og maðurinn minn erum að hefja nám í haust og ég get alls ekki farið með son minn til hennar, það er eitthvað mikið að í hausnum á henni. Eruð þið með ráð, er einhver einhvers staðar með laust pláss?“.
Móðirin er sögð í miklu uppnámi og viti vart sitt rjúkandi ráð. Hún fær svör frá öðrum mæðrum í hópnum: Elín vill kenna fjölmiðlum um hvernig komið er fyrir Sólveigu: „Mér finnst fjölmiðlar fyrir utan Útvarp Sögu, vera óskaplega daprir. Níðast á fólki sem rennur til rifja að ungum ófrískum er att í bólusetningar sem hafa sýnt sig að eru ekki vörn fyrir þær“. Þórunn segir: „Þar sem að hún er á móti öllum bólusetningum á börn þá myndi ég ábyggilega ekki setja mitt barn til hennar enda eru þá hennar börn ekki bólusett fyrir neinu“. Halldóra segir: „Það þurfti að handjárna hana til að hún væri með grímu“.
Svala kemur með reynslu og heilræði: „Ég lenti í því þegar sonur minn var á leið til dagforeldra og ég var að fara að byrja að vinna, að það komu upp nokkur rauð flögg í samskiptunum við dagforeldrana og mér leist ekki á að setja son minn til þeirra. Ég átti að byrja að vinna eftir örfáar vikur og engir dagforeldrar virtust á lausu, en ég hringdi í þann einstakling hjá bæjarfélaginu sem hafði með dagforeldra að gera og sagði henni hver staðan var. Hún gat bent mér á vana dagmömmu sem var að fara að byrja aftur, svo að ég var ein af þeim fyrstu sem komst að hjá henni. Svo ég myndi prófa að hringja í daggæslufulltrúa og sjá hvort að þau geta hjálpað þér“.
Móðirin mætir að mestu leiti mikils skilnings hinna mæðranna sem skilja að hún er í uppnámi vegna stöðunnar sem komin er upp og flestar eru sammála því að þær myndu ekki láta barn sitt í hendurnar á Sólveigu Lilju.