Ágúst Ingi Rossen lést úr hjartastoppi aðeins 24 ára gamall. Hann bjó á Akranesi til níu ára aldurs, en fjölskyldan flutti þá til Danmerkur þar sem Ágúst lauk grunnskóla og stúdentsprófi og stefndi hann á framhaldsnám.
Móðir Ágústar, Ásta Laufey Ágústsdóttir, minnist drengsins síns með sorg og hlýju í minningargrein í Morgunblaðinu:
„Að vera foreldri er mikilvægasta hlutverk sem okkur er úthlutað í þessu lífi, ég er óendanlega þakklát fyrir það hlutverk. Á sama tíma sé ég ekki sanngirni í því að sitja hér og reyna að finna orð yfir það sem engin orð ná yfir. Að missa barnið sitt fylgir engin uppskrift eða hvernig við sem eftir sitjum eigum að finna fótfestu aftur. Þú kvaddir þennan heim snöggt og óvænt eftir hjartastopp þann 7. ágúst. Í sömu andrá varð okkar versti ótti sem foreldrar að veruleika. Við sveiflumst nú í vanmætti á milli sorgar og örvæntingar og þess að minnast þín með gleði og þakklæti fyrir þann tíma sem við fengum saman.
Daginn sem ég fékk þig fyrst í fangið var yndislegt upphaf á nýrri tilveru í stóru hlutverki. Dagurinn sem þú kvaddir þennan heim var erfiðasta upphaf á nýrri tilveru með óendanlega erfiðu verkefni. Ég vildi gjarnan vera laus við þetta nýja verkefni, ég er hræddari við það en þegar ég fékk það hlutverk að vera mamma þín. 24 ár eru ekki langur tími, eins og þínir jafnaldrar og vinir áttir þú framtíðina fyrir þér með mörg plön og framtíðaráætlanir. Við sjáumst í sumarlandinu, ástin mín. Þín, mamma.“