Fimmtudagur 2. maí, 2024
7.8 C
Reykjavik

Páll segir vinstrimenn vilja fylla landið af útlendingum – „Fyrirlíta íslenska alþýðu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Páll Vilhjálmsson, blaðamaður og kennari, segir í nýrri bloggfærslu sinni að útlendingar sameini íslenska vinstrimenn. „Vinstrimenn nenna ekki að bíða eftir næstu móðuharðindum til að komast yfir landsstjórnina. Þrautaráðið er að fylla landið útlendingum. Skipta um þjóð í landinu,“ skrifar Páll og segir þjóðina afþakka forræði vinstrimanna. Mannlíf fjallaði í gær um gagnrýni séra Davíðs Þórs á Facebook-síðu sinni en kallaði hann ríkisstjórnina fasistastjórn. Páll segir prestinn tóna boðskapinn með færslu sinni. „Vinstripresturinn Davíð Þór, spaugari á yngri árum og ritstjóri klámrits, tónar boðskapinn: þeir sem efast um ágæti yfirtölu útlendinga á Fróni fari beina leið til helvítis,“ skrifar Páll en færsluna endar hann á orðinu: Amen.
Bloggfærslu Páls má lesa í heild hér að neðan.

„Útlendingar sameina íslenska vinstrimenn. Vinstrimenn fyrirlíta íslenska alþýðu, menningu hennar og lífsviðhorf. Mottóið er ,,allt er betra en íslenskt.“

Andúðin liggur í erfðamenginu. Þjóðin afþakkar forræði vinstrimanna og hefur allaf gert. Flokkar þeirra skipta um nafn og kennitölu, ýmist fjölgar þeim eða fækkar, en alltaf segir almenningur nei, takk.

Aðeins einu sinni í Íslandssögunni fá vinstrimenn meirihluta, þegar þjóðin var hugstola eftir svokallað hrun. Á valdatíð Jóhönnustjórnarinnar lék allt á reiðiskjálfi. Stjórnarskráin var í uppnámi, fullveldinu var nærri fargað í þágu útlendinga í Brussel og fjármálakerfið var afhent útlendingum á silfurfati.

Vinstrimenn nenna ekki að bíða eftir næstu móðuharðindum til að komast yfir landsstjórnina. Þrautaráðið er að fylla landið útlendingum. Skipta um þjóð í landinu.

Vinstripresturinn Davíð Þór, spaugari á yngri árum og ritstjóri klámrits, tónar boðskapinn: þeir sem efast um ágæti yfirtölu útlendinga á Fróni fari beina leið til helvítis.

- Auglýsing -

Kjöftugum ratast þar óviljandi satt orð í munn. Vinstrimönnum er helvíti hugstæðara en himnaríki. Gúlagið fremur en grænir hagar.

Amen.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -