„Við ætlum að senda fyrirspurn til lögreglu um málið,“ sagði Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó í samtali við Fréttablaðið. Fyrirspurnin sem um ræðir snýr að líkamsárás, sem vagnstjóri varð fyrir, við endastöð við Hof á Akureyri. Ferðafélagi árásarmannsins hafði verið skilinn eftir á Blönduósi en skömmu síðar hafði lögregla samband og óskaði eftir því að vagninn biði eftir manninum.
Kom maðurinn aftur um borð í vagninn í Varmahlíð eftir að lögregla hafði skutlað honum þangað. Að sögn bílstjórans hafði bæði hann, og ferðafélagi hans, verið til vandræða mest alla ferðina. Endað ferðin á því að maðurinn réðst á bílstjórann. Sagði Guðmundur afskiptin undarleg. Næsta skref væri fyrirspurn til lögreglu um málið.