„Hann var bara lausamaður,“ sagði sjómaður á skipinu Helgu Maríu, um Kristján Einar Sigurbjörnsson, áhrifavald. Lítið hefur spurst til Kristjáns Einars eða Kleina, eins og hann er kallaður, eftir að hann var handtekinn á Spáni í mars síðastliðnum. Ekki liggur fyrir hvers vegna hann var handtekinn en hefur Kleini áður komist í kast við lögin. Þá var hann sakfelldur á síðasta ári fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot.
Kleini sagði í viðtali við Fréttablaðið í janúar á síðasta ári að honum líkaði vinnan á sjónum. Sagðist hann starfa á skipinu Helgu Maríu, í eigu Brims, en Kleini er alinn upp í miklum útgerðarbæ. Blaðamaður Mannlífs ræddi við skipverja Helgu, sem hafði ekki heyrt í Kleina í langan tíma. Aðspurður hvort Kleini myndi snúa aftur til starfa sagðist hann ekki halda það. „Ég reikna ekki með því, ég hef ekki heyrt í honum í langan tíma.“ Þá kvaðst fyrrum samstarfsmaður Kleina ekki vita hvort hann væri enn í haldi lögreglunnar á Spáni. „Ég er í engu sambandi við hann,“ sagði hann að lokum.