- Auglýsing -
Ökumaður bifhjóls var fluttur á fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupsstað eftir árekstur við bifreið.
Austurfrétt segir frá því að ökumaður vélhjóls hafi verið fluttur á sjúkrahúsið í Neskaupsstað eftir árekstur við bifreið við brúna yfir Eyvindará við Egilsstaði í gærkvöldi.
Áreksturinn átti sér stað um kvöldmatarleytið í gær. Skullu mótorhjólið og bifreiðin saman þannig að ökumaðuri hjólsins féll í götuna og hafnaði utan vegar. Slasaði hann en var með meðvitund. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar var hann fluttur til skoðunar og meðhöndlunar hjá lækni í Neskaupsstað.