Jaðaríþróttamaðurinn og áhrifavaldurinn Jay Alvarez var staddur hér á landi í vikunni og lét eldgosið í Meradölum ekki fram hjá sér fara. Hann lét sér hins vegar ekki nægja að berja náttúruundrið augum, heldur gerði hann sér lítið fyrir og gekk á reipi við eldgosið.
Alvarez, sem er með 7,7 milljónir fylgjenda á Instagram og yfir milljón áskrifendur á Youtube, festi reipi við bíl sinn við gosstöðvarnar og gekk á því. Hann tók mikilfenglegt myndband af uppátækinu og birti á miðlum sínum með orðunum „Fagradalsfjall á Íslandi gýs nú aftur!! Ein af mest töfrandi lífsreynslum ævi minnar..“
Alvarez aðhyllist hinar ýmsu jaðaríþróttir, á borð við fallhlífastökk og klettaklifur. Hér fyrir neðan má sjá myndbandið, sem hann birti fyrir rúmri klukkustund síðan.
View this post on Instagram