Formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, segir allt vera í fínu standi hér á Fróni, og gefur okkur innsýn í hugarheim sinn hvað stjórnmálin varðar:
„Í umræðu um efnahagsmál finnst mér oft horft á alla röngu mælikvarðana. Þetta ræddi ég í sérstakri umræðu við Ásthildi Lóu Þórsdóttur á Alþingi í gær. Einblínum á það sem máli skiptir; Hvernig er staða heimilanna, hvernig gengur atvinnulífið í landinu og hverjar eru horfurnar í ríkisrekstrinum?“ spyr Bjarni og svarar svo sjálfum sér:
„Staðan er í öllum samanburði góð og við erum með trúverðuga áætlun um að draga stöðugt úr hallarekstri og styrkja grunninn. Við höfum öll færi til að standa áfram með heimilunum í landinu ef við einfaldlega höldum áfram – og hlaupum ekki í fangið á Evrópusambandinu eða öðrum töfralausnum stjórnarandstöðunnar.“