Sjálfur kóngur íslenskrar tónlistarsögu, Bubbi Morthens, hefur alla tíð hugsað vel um skrokkinn á sér; yfirleitt verið í toppformi enda með mikla orku og hreyfiþörf.
Hann segir á Facebook-síðu sinni að „ég er búin vera í mjög stífu átaki. 26. desember á seinasta ári var ég of þungur; fann fyrir því orðið alla daga,“ segir hann og bætir við:
„Ég ákvað taka þetta einn dag í einu; fasta 18 tíma, er samt að borða allt; æfi 5-6 daga í viku.“
Bubbi vildi létta sig og geri það, enda maður bæði orða og athafna:
„Ég létti allar þyngdir; keyri mikið á úthald, brennslu; geri það sem mig langar; held samt ákveðnum þáttum inni; bak, brjóst, hendur, kviður; fætur boxa púðann alla daga. Nota stigann og hjóla.“
Og árangurinn hefur ekki látið á sér standa; árangurinn er mælanlegur:
„Ég er 81,8 kíló í dag, var 104 kíló þegar ég byrjaði; ætla fara í 78 kíló. Ég var að æfa í miklum þyngdum sem fóru illa með alla liðo; í dag er ég léttur sem hind.“