Grunur er um salmonellusmit í ferskum kjúklingi frá fyrirtækinu Reykjagarði hf.
Kjúklingunum var dreift í verslanir Hagkaupa, Krónunnar, Nettó, Costco, Kjörbúðarinnar, Heimkaup og einnig Extra.
Kjúklingarnir hafa rekjanleikanúmerin 001-22-49-4-02 og 001-22-49-5-10.
Eru neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessum númerum beðnir að skila vörunni til viðkomandi verslunar, eða beint til Reykjagarðs hf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
Það kemur fram að innköllunin á aðeins við um vörur með áðurnefndnum rekjanleikanúmerum og biðst Reykjagarður hf. afsökunar í fréttatilkynningu á mögulegum óþægindum; þá biðlar félagið til viðskiptavina sinna að gæta þess að blóðvökvi berist eigi í önnur matvæli.