Tilnefningar til Óskarverðlaunanna voru opinberaðar rétt í þessu. My Year of Dicks hlaut tilnefningu en Sara Gunnarsdóttir er leikstjóri myndarinnar. Teiknimyndin er stuttmynd og er framleidd af Pamelu Ribon fyrir FX Network.
Lýsing myndarinnar er eftirfarandi: Fyndin teiknimynd sem fer þvert á genre. Hugmyndarík og þrjósk fimmtán ára gömul stúlka er staðráðin í að missa meydóminn þrátt fyrir sorglegt val sitt. Myndin á að gerast í útjaðri Houston snemma á tíunda áratugnum. Þessi heillandi, gaman- og teiknimynd dregur ekki úr neinu þegar kemur að kvenkynssýn kynferðislegrar vakningar. Myndin byggir á endurminningum Pamelu Ribon og hefur hlotið lof gagnrýnenda.
Hér að neðan má sjá stiklu úr myndinni.