- Auglýsing -
Í dag voru tveir einstaklingar teknir höndum á Höfða; einn var fluttur á slysadeild eftir hugsanlega stunguárás á Höfða.
Voru tveir sjúkrabílar sendir á vettvang með hraði eftir að lögreglu barst tilkynning um málið.
Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins kom til harðra átaka í Mathöll Höfða.
Vegna þessa var lögreglan eðlilega með nokkurn viðbúnað á svæðinu, og lögregluþjónar eru enn að störfum í Mathöllinni sem og fyrir utan hana.
Upplýsingar frá lögreglu bentu til atvikið væri hnífstunguárás; það er til rannsóknar nú.