Mikill fjöldi tónleika og viðburða eru auglýst næstu vikur og mánuði og ljóst að þjóðin er orðin langþyrst eftir skemmtan eftir innilokun faraldarins. Einnig hefur færst líf í bókanir á húsnæði undir veisluhöld og ráðstefnur.
Má þar þakka afléttingum samkomutakmarkana, góðu gengi bólusetninga svo og endurkomu ferðamanna til landsins.
Allt á fulla ferð
„Okkur sýnist á öllu að strax eftir verslunarmannahelgi fari allt á fulla ferð,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu” í samtali við mbl. Hún vísar til tónleika af öllum stærðum og gerðum, ráðstefnur, veislur og árshátíðir. Enn er þó pláss. Það eru margar vistarverur í þessu húsi.“
Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, segir í sama viðtali ekki vita fjölda bókaðra brúðkaupa í sumar en þau séu mörg. ,,Einhverjir dagar eru orðnir þéttir og jafnvel fullbókaðir. En við erum með marga sali og getum tekið við ansi miklu“.
Hugsanlegt offramboð
Meðal tónlistarviðburða sem miðasala er hafi á eru tónleikar Nýdönsk í Eldborg í september, Sigga og Grétar í Stjórninni ætla að ferðast um landið í sumar, Helgi Björns verður með sumarhátíð í ágúst og fóstbræðurnir Maggi Eiríks og Pálmi Gunnars halda hvor sína afmælistónleikana. Það sama gerir Páll Óskar og Jón Jónsson ætlar að fylla Eldborg. Þá koma Smokie og Skunk Anansie til landsins svo fátt eitt sé nefnt. Óvíst er hvort eftirspurn sé eftir öllum þeim tónleikum sem fyrirhugaðir eru,“ segir í grein mbl.
„Það verður töluvert offramboð af tónleikum. Vonandi verður þorstinn alveg gríðarlegur hjá landsmönnum,“ segir Eiður Arnarsson, framkvæmdastjóri Félags hljómplötuframleiðenda og tónlistarmaður. „Markaðurinn mun ekki allt í einu verða 100 prósent eins og hann var. Ég held að þetta komi í skrefum en vonandi verða þau stór.”