Sunnudagur 5. maí, 2024
2.8 C
Reykjavik

Ásgeir segist saklaus af ritstuldi: „Ég hef verið þjófkenndur í fyrsta skipti á ævinni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Öll spjót standa nú á Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra Íslands vegna ásakana um ritstuld. Segist hann í yfirlýsingu vera alsaklaus af þeim ásökunum.

„Síðustu dagar hafa verið mjög sérstakir hjá mér þar sem ég hef verið þjófkenndur í fyrsta skipti á ævinni. Ég hef ekki viljað bregðast við fyrr en ég hefði fengið ráðrúm til þess að lesa bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum og bregðast efnislega við þeim ásökunum sem hann hefur sett fram. Ég mun því fjalla ítarlega um málið síðar. Ég vil þó nefna nokkra hluti nú þegar.

Bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum er ekki hefðbundin sagnfræði. Hún er það sem höfundur kallar sjálfur í formála „röksaga“ eða „ímyndun grundaða á þekkingu“. Þá eða eins og segir í eftirmála að verkið sé „formtilraun, viðleitni til að brúa bilið milli fræðimanns og rithöfundar og nota bæði heilahvelin samtímis. Útkoman er blendingur.“ Í þessu samhengi má einnig halda því til haga að í ritdómi um bókina sem Gunnar Karlsson ritaði í Sögu Tímarit Sögufélagsins árið 2019 eru gerðar athugasemdir við heimildanotkun og túlkanir bókarinnar og segir að ritverk af þessum toga séu „býsna ósambærileg við sagnfræði“. Gunnar telur það alls ekki augljóst að hún geti talist fræðirit. Ég fæ heldur ekki betur séð en að það viðhorf sé ríkjandi meðal annarra sagnfræðinga. Ég hef ekki haft tíma til að kynna mér ritdóma um bókina á öðrum tungumálum. Ég vil taka sérstaklega fram eftir að hafa lesið bók Bergveins að hún er mjög skemmtileg og upplýsandi um margt – og að mínu áliti frábært framtak af hans hálfu,“ segir Ásgeir meðal annars í yfirlýsingu sinni á Facebook.

Ásgeir segir einnig að bók sín sé ekki fræðibók heldur svokallaðir „leikmannsþankar.“

„Hvaða mína bók varðar Eyjan hans Ingólfs þá er hún ekki fræðirit og hefur aldrei verið kynnt sem slík. Hún er til að mynda ekki með heimildaskrá. Ég get þeirra heimilda sem ég nota í neðanmálsgreinum en þessa bók má alls ekki líta á sem tæmandi fræðirit um landnám Íslands. Sagnfræðingar hafa ágætis orð fyrir bækur af þessu tagi sem „leikmannsþankar“. Þessi bók er sprottin upp af einlægum söguáhuga mínum.“

Þá tekur hann aukreitis fram að hann hafi ekki gefið bókina út í gróðraskyni, hann sé sáttur ef hún kemur út á núlli.

- Auglýsing -

„Ég vil líka taka fram að ég vonast ekki eftir neinum efnalegum ávinningi með ritun þessarar bókar. Ég verð aðeins ánægður ef bókin stendur undir framleiðslukostnaði.“

Að lokum segir Ásgeir að það hefði verið afar heimskulegt af sinni hálfu að stunda ritstuld, stöðu sinnar vegna.

„Ég vil í lokin aðeins taka fram að ég hef aldrei áður verið vændur um stuld. Enda væri það ákaflega heimskulegt stöðu minnar vegna að reyna slíkar kúnstir með bók líkt og Leitina að Svarta víkingnum sem var metsölubók á Íslandi. Ég hef heldur engan áhuga á því að lýsa yfir eignarrétti á einu eða neinu sem tengist Landnámu. Þá bók á þjóðin öll saman.“

- Auglýsing -

Sjá einnig: Hannes styður Ásgeir – Var sjálfur dæmdur fyrir ritstuld

Hér má sjá yfirlýsinguna í heild sinni:

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -