Góðgerðarpizza Hrefnu Rósu Sætran og Domino´s verður á matseðli 21. – 25. október.
Þetta er í sjöunda sinn sem Góðgerðarpizzan er í boði, en hún er samstarfsverkefni Hrefnu og Domino´s og á hverju ári rennur andvirði allrar sölu hennar óskipt til góðs málefnis.
Í ár rennur öll sala hennar óskipt í Minningarsjóð Lofts Gunnarssonar og verður fjárhæðin notuð til að styðja „Aftur út í lífið“ sem er verkefni á vegum sjóðsins. Áhersla Domino’s er að styrkja opnun dagrýmis fyrir heimilislausa, öruggt athvarf yfir daginn þar sem boðið verður upp á afþreyingu og stuðning.
„Góðgerðarpizzan í ár ætti að gleðja þá sem kunna að meta gott pepperoni. Á pizzuna setti ég græna papriku, sveppi, fetaost — og svo tvenns konar pepperoni, þetta sívinsæla og svo sterkt pepperoni sem gefur kryddaðan og bragðmikinn keim. Leynivopnið er svo rauðlaukssultan sem ég gerði sérstaklega fyrir Góðgerðarpizzuna. Njótið vel,“ segir Hrefna Sætran.
Á meðal fyrri málefna sem notið hafa góðs af má nefna Reykjadal, sem er sumar- og helgardvalarstaður fyrir fötluð börn og ungmenni, Konukot og Bataskóli Íslands.