Fimmtudagur 2. maí, 2024
8.1 C
Reykjavik

Sigurdór, ástsæll söngvari, fararstjóri og blaðamaður, lést annan í jólum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sig­ur­dór Sig­ur­dórs­son, blaðamaður, fararstjóri og ástsæll söngvari, lést á Land­spít­aln­um á öðrum degi jóla, 83 ára að aldri. Hann var fædd­ur á Akra­nesi 24. nóv­em­ber 1938.

Blessuð sé minning Sigurdórs.

Sigurdór er ekki þekktasti dægurlagasöngvari íslenskrar tónlistarsögu en hann söng hins vegar slagara sem allir hafa heyrt í hans meðförum og margir sungið með – Þórsmerkurljóð.

Sigurdór er fæddur og uppalinn á Akranesi en fluttist til Reykjavíkur á barns- eða unglingsaldri. Hann var átján ára gamall þegar hann hóf að koma fram opinberlega sem söngvari en þá hafði valið staðið annars vegar um söng- eða knattspyrnuferil hins vegar en hann þótti liðtækur knattspyrnumaður, hið fyrrnefnda varð ofan á því það gat gefið af sér þokkalegar tekjur sem íþróttirnar gerðu ekki.

Fyrstu opinberu samkomurnar sem Sigurdór söng á voru revíu- og kabarettsýningar, t.d. á vegum Íslenzkra tóna og fljótlega slóst hann í hóp ungra og efnilegra dægurlagasöngvara og söng m.a. á miðnæturskemmtunum í Austurbæjarbíói. Í kjölfarið hófst hinn eiginlegi söngferill þar sem hann söng með hljómsveitum eins og KK sextett, Hljómsveit Aage Lorange og Hljómsveit Svavars Gests en með síðast töldu sveitinni söng hann stórsmellinn um Maríu, Þórsmerkurljóð Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings sem kom út árið 1960 á tveggja laga plötu á vegum Íslenzkra tóna – það var svo endurútgefið ári síðar. Lagið sló í gegn og varð feikivinsælt í óskalagaþáttum Útvarpsins og Sigurdór þurfti að syngja það margsinnis hvert einasta kvöld á dansleikjum. Vart þarf að taka fram að lagið hefur komið út á ógrynni safnplatna.

Ung­ur flutti Sig­ur­dór frá Akra­nesi til Reykja­vík­ur, þá eft­ir gagn­fræðapróf frá Héraðsskól­an­um í Reyk­holti. Nam prent­verk og lauk prófi í þeirri iðn árið 1961. Starfaði sem prent­ari næsta ára­tug­inn og fór svo þegar fram liðu stund­ir að sinna íþróttaf­rétta­mennsku í ígrip­um. Árið 1970 gerðist Sig­ur­dór blaðamaður á Þjóðvilj­an­um og starfaði þar til árs­ins 1986. Færði sig þá yfir á DV og starfaði þar til 1997. Var blaðamaður á Degi 1997 til 2001 og eft­ir það til starfs­loka á Bænda­blaðinu. Sem blaðamaður skrifaði Sig­ur­dór mikið um póli­tík, verka­lýðsmál og sjáv­ar­út­veg. Á öll­um blöðunum, sem fyrr eru nefnd, var Sig­ur­dór jafn­framt með þætti með kveðskap og lausa­vís­um, sem hann safnaði og skráði. Síðustu árin birti hann slíkt efni gjarn­an á net­inu.

Sem ung­ur maður var Sig­ur­dór vin­sæll söngv­ari, meðal ann­ars með Hljóm­sveit Svavars Gests. Árið 1960 söng hann inn á hljóm­plötu Þórs­merk­ur­ljóð við texta Sig­urðar Þór­ar­ins­son­ar jarðfræðings. Lagið náði mikl­um vin­sæld­um sem varað hafa til þessa dags. Á sumr­in frá 1976 til 1988 var Sig­ur­dór far­ar­stjóri Íslend­inga á Spáni á veg­um Úrvals.

- Auglýsing -

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Sig­ur­dórs er Sigrún Giss­ur­ar­dótt­ir, en þau gengu í hjóna­band árið 1961. Þau eignuðust tvær dætur.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -